Hinseginleikinn
Aldursbil :
Dróttskátar, Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Leiðtogafærni, Skapandi hugur, Heimurinn og umhverfið, Tilveran mín, Samskipti, Gagnrýnin hugsun, Heimurinn, Samfélagið, Eigin gildi

Kröfur :
Til að fá færnimerkið „Hinseginleikinn“ þarftu að
geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:
• Kynna þér þau viðmið og norm sem gilda um kyn, kynvitund, kynhneigð og kyntjáningu. hægt er að sækja margvíslega fræðslu t.d. hjá samtökunum 78 eða otila.is
• Skoða hvernig þessi viðmið og norm birtast í mismunandi aðstæðum t.d. í skólanum, í skátunum eða almennt í samfélaginu
• Hugleiða hvernig þú getur lagt þitt að mörkum til að útvíkka umræðu og mögulega brjóta niður þær venjur og viðmið sem eru í gildi varðandi kyn og hinseginleika
• Kynna þér þessi mál í öðrum samfélögum, löndum og skátabandalögum. Búa öll við sama öryggi, réttlæti og samþykki í mismunandi löndum?
Lýsing:
Sem betur fer erum við öll ólík og mismunandi. Í samfélaginu okkar eru alls kyns óskrifaðar reglur og viðmið sem segja þér hvernig þú átt að vera og hvernig ætlast er til að þú hagir þér, t.d. í sambandi við kyn, kynhlutverk, kynvitund og kynhneigð. Fólki sem á einhvern hátt fellur utan þessara viðmiða, er því miður ekki alltaf mætt með skilningi og samþykki. Margt fólk sem br!tur gegn þessum viðmiðum skilgreinir sig sem hinsegin. Þegar fólk mætir mótlæti sökum kyns, kynhlutverks, kynvitundar eða kynhneigðar sinnar þá eru það fordómar. Það er mikilvægt að kynna sér hugtök sem tengjast kyni, kynhlutverkum, kynvitund, og kynhneigð og átta sig á því að við erumekki öll eins. Þetta getur hjálpað okkur að bregðast við með skilningi þegar fólk í kringum okkur tjáir sig um þessi mál eða jafnvel kemur út úr skápnum sem hinsegin. Það skiptir máli að öll geti upplifað að þau eigi sinn stað í samfélaginu og að þeirra rödd og tilvera skipti máli. Það er mikilvægt að hafa í huga að hvert og eitt okkar hefur rétt til að velja hvenær, hvernig og við hvern rætt er um okkar eigin kynvitund og kynhneigð. Það skuldar ekkert öðrum útskýringu á kyni sínu, kynhlutverki, kynvitund eða kynhneigð. Með því að vinna að færnimerkinu getum við hjálpað til við að gera viðmið um kyn og kynhneigð sýnilegri og stuðlað að auknum skilningi á fjölbreytileika samfélagsins.








