Snjór
Aldursbil :
Drekaskátar, Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Leiðtogafærni, Heimurinn og umhverfið, Tilveran mín, Hópurinn, Samskipti, Náttúran, Áskoranir, Líkaminn

Kröfur :
Til að fá færnimerkið „Snjór” þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:
• Byggja þitt eigið snjóhús
• Dróttskátar og eldri, gista í snjóhúsinu ef aðstæður eru fyrir hendi
• Þekkja mismunandi hættur af útiveru í snjó, svo sem vegna snjóhruns, snjóflóða, ofkælingar og kalsára
• Vita hvernig á að þurrka blaut föt, bæði innanog utandyra
• Fara í leik í snjónum þar sem öll í flokknum eða sveitinni eru sammála um reglur, hlutverk og tilgang
Lýsing:
Snjór er allt í senn fallegur, skemmtilegur og krefjandi byggingarefni. Þegar snjórinn hefur lagst yfir landið breytir það um svip og tekur á sig nýjan og framandi blæ. Leikur í snjónum er ótrúlega skemmtilegur á meðan þú heldur á þér hita, ert þurr og þú og flokkurinn þinn eruð sammála um hvar mörk leiksins liggja. En hann krefst líka ákveðinnar þekkingar, um hvernig best sé að klæða sig, hvernig snjóbyggingar breytast með veðrinu, um hættur á til dæmis snjóhruni og snjóflóðum og tryggja að öll séu að skemmta sér vel.








