Góðverk

Aldursbil :

Drekaskátar, Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar


Markmiðaflokkar :

Leiðtogafærni, Heimurinn og umhverfið, Tilveran mín, Hópurinn, Samfélagið, Eigin gildi, Tilveran

Góðverk

Kröfur :


Til að fá færnimerkið Góðverk þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:

• Ígrunda hvernig þú getur gert góðverk.

• Halda dagbók í fyrirfram ákveðinn tíma.

• Flokkurinn eða sveitin ákveður tímarammann í samráði við foringja.

• Skrifaðu, límdu myndir sem þú tekur eða teiknaðu þau góðverk sem þú gerir á tímabilinu.

• Það má t.d. byrja verkefnið á fundi og athuga svo framvindu á næstu tveimur fundum og endurmeta svo á þeim fjórða.

• Markmiðið er að reyna að gera eitt góðverk á hverjum degi. 

Lýsing:


Eitt æðsta markmið skátahreyfingarinnar er að stuðla að betri heimi. Að hugsa um hag annarra, sýna góðvild og að vera hjálpsöm kann að virðast sjálfsagt en við þurfum stundum að minna okkur á hvernig við getum best komið að gagni og hjálpað samborgurum okkar. Að gera góðverk er þegar þú gerir eitthvað sem hjálpar öðrum eða léttir þeirra lund, án þess að þurfa að gera það eða fá fyrir það umbun. T.d. að hjálpa öldruðum, börnum eða einstaklingum sem á þurfa hjálp að halda