Hjálpa
Aldursbil :
Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Leiðtogafærni, Skapandi hugur, Tilveran mín, Samskipti, Lausnaleit, Líkaminn

Kröfur :
Til að fá færnimerkið Hjálpa þarftu að kunna og geta sýnt flokknum þínum og foringja að þú þekkir og kunnir skil á því sem færnimerkið Plástra krefst af þér, ásamt því að kunna skil á eftirfarandi:
• Að losa um öndunarveg.
• Að leggja í læsta hliðarlegu.
• Að búa um tognaðan ökkla.
• Að vita hvaða neyðarhjálparbúnað skal hafa með í göngur.
• Sýna að þú getir séð um eigið persónulegt hreinlæti í tjaldútilegu.
• Þekkja einkenni næringar- og vökvaskorts og vita hvernig má koma í veg fyrir hann.
• Þekkja fjögur skref skyndihjálpar.
• Tryggja öryggi á vettvangi
• Meta ástand slasaðra eða sjúkra
• Sækja hjálp
• Veita skyndihjálp
Lýsing:
Hjálpa er framhald af færnimerkinu Plástra. Hér lærir þú hvernig hægt er að hjálpa slösuðum, hvað þarf til að veita fyrstu hjálp og hvernig hægt er að koma í veg fyrir að einhver slasi sig. Áður en haldið er af stað í ævint!raferð er mikilvægt að vera viðbúin/n og kunna að meðhöndla áverka og slys sem upp kunna að koma.








