Sofa að heiman í 7 nætur
Aldursbil :
Drekaskátar, Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Leiðtogafærni, Skapandi hugur, Tilveran mín, Leiðtogafærni, Lausnaleit, Eigin gildi, Áskoranir

Kröfur :
Til að fá færnimerkið „Að sofa að heiman í 7 nætur“ þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:
• Að sofa samanlagt í gegnum þinn skátaferil í 7 nætur. Nætur teljast svo lengi sem það er gist yfir heila nótt og er hluti af skátaviðburði/skátastarfi. T.d skátamót, innilegur og jafnvel rekkaspilakvöldið sem stóð til morguns.
• Halda utan um næturnar á skipulagðan hátt.
Lýsing:
Nú er skátinn orðin vanari að sofa að heiman og með því að vinna að þessu færnimerki safnar hann í dýrmæta reynslu. 7 nætur að heiman þýðir sjö mismunandi minningar og reynsla í ólíkum aðstæðum.








