Meistarakokkur

Aldursbil :

Dróttskátar, Rekkaskátar


Markmiðaflokkar :

Leiðtogafærni, Skapandi hugur, Heimurinn og umhverfið, Tilveran mín, Hópurinn, Samskipti, Gagnrýnin hugsun, Samfélagið, Eigin gildi, Líkaminn

Meistarakokkur

Kröfur :


Til að fá færnimerkið Meistarakokkur þarftu að hafa lokið færnimerkinu Kokkur og geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:

• Geta skipulagt matseðil fyrir vikulanga útilegu, tvær helgar eða sambærilegt

• Gera kostnaðaráætlun

• Velja mat sem er við hæfi fyrir tilefnið

• Hafa í huga geymslu á matvælunum, með tilliti til gildistíma

• Tryggja næringu og hollustu

• Tryggja að eldunaraðferðir séu við hæfi og henti staðsetningu

• Vera meðvituð um ofnæmi, menningarmun, grænmetisfæði o.s.frv.

• Hugsa um hvaðan maturinn sem er valinn kemur, með tilliti til dýra og umhverfis.

• Taka þátt í að búa til að lágmarki þriggja rétta máltíð, bæði innan- og utandyra t.d. með prímus, yfir eldi eða með öðrum hætt

Lýsing:


Meistarakokkur er framhald af færnimerkinu Kokkur. Færnimerkið miðar að því að fræðast enn frekar um mat og matargerð ásamt því að þjálfast í gerð matseðla fyrir útilegur.