Lífsbjörg
Aldursbil :
Dróttskátar, Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Leiðtogafærni, Skapandi hugur, Heimurinn og umhverfið, Tilveran mín, Hópurinn, Lausnaleit, Náttúran, Áskoranir

Kröfur :
Til að fá færnimerkið „Lífsbjörg“ þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:
• Vita hvernig á að nota björgunarbúnað t.d. björgunarhring og líflínu
• Þekkja og eða þær aðstæður sem geta komið upp við leik og störf í sjó og vatni og hvernig skuli bregðast við
• Prófa að “detta í vatn” í alklæðnaði og synda a.m.k 50m
• Æfa samskipti við þau sem eru í lífsháska
• Æfa að bjarga vini við ólíkar aðstæður t.d. frá landi, úr báti eða í vatni
• Geta synt 200m
Lýsing:
Skáti ber ábyrgð á sjálfum sér og jafnvel fleirum, oft við fjölbreyttar aðstæður. Hluti af því að “vera viðbúinn”, er að vera undirbúinn og hafa þjálfað sig við öruggar aðstæður sem getur skipt sköpum þegar alvaran verður meiri. Í færnimerkinu „Lífsbjörg“ fá skátarnir að æfa sjálfsbjörgun og björgun annarra úr lífshættulegum aðstæðum við vötn og sjó. Hægt er að aðlaga færnimerkið til að þjálfa björgun fyrir sérstakar aðstæður, svo sem köfun, siglingar, kajak eða sund.








