Rata
Aldursbil :
Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Skapandi hugur, Heimurinn og umhverfið, Tilveran mín, Hugurinn, Náttúran, Sjálfstraust-sjálfsábyrgð og sjálfsþekking, Áskoranir

Kröfur :
Til að fá færnimerkið Ramba þarftu að þekkja til og geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:
• Skilja samspil landakorta og náttúrunnar og þekkja helstu tegundir landakorta.
• Geta notað mismunandi tegundir af landakortum, í mismunandi skölum, til að rata og finna eigin staðsetningu, bæði í byggð og náttúru.
• Kunna að nota áttavita og nota hann til að finna höfuðáttir og taka stefnu á leiðarenda.
• Kunna aðrar leiðir til að finna höfuðáttir t.d. með úri, pólstjörnunni eða ummerkjum í náttúrunni.
• Vita hvar þú getur fundið landakort og gervitunglamyndir á netinu.
• Hafa prófað og þekkja grunnvirkni GPS tækja, hafirðu aðgang að því.
Lýsing:
Áður en haldið er á vit ævint!ranna í óbyggðum er mikilvægt að geta fundið félaga sína og vera fær um að rata. Rata er framhald af færnimerkinu Ramba og fræðir þig um þau tæki og tól sem hjálpa þér við rötun og ratvísi.








