Bjarga

Aldursbil :

Dróttskátar, Rekkaskátar


Markmiðaflokkar :

Leiðtogafærni, Skapandi hugur, Tilveran mín, Samskipti, Lausnaleit, Líkaminn

Bjarga

Kröfur :


Til að fá færnimerkið Bjarga þarftu að þekkja til og geta sýnt flokknum þínum og foringja að þú þekkir og kunnir skil á því sem færnimerkið Hjálpa krefst af þér, ásamt því að kunna skil á eftirfarandi:

• Kunna að lesa í slysstað, forgangsraða og útdeila verkefnum

• Vita hvernig á að meðhöndla beinbrot

• Vita hvernig þú átt að bregðast við bruna eftir reipi

• Kunna að slökkva eld ef kviknar í manneskju

• Vita hvernig á að meðhöndla stærri brunasár

• Kunna að veita grunn endurlífgun

• Vita hvernig á að meðhöndla einhvern sem er meðvitundarlaus vegna ölvunar eða eitrunar, vegna blóðsykurfalls hjá sykursjúkum eða vegna flogaveikiskasts

• Vita hvernig á að meðhöndla kalsár og hvernig skal greina og meðhöndla ofkælingu

Lýsing:


Bjarga er framhald af færnimerkinu Hjálpa. Til að hjálpa einhverjum í mikilli neyð er mikilvægt að hafa bæði færni og þekkingu til að bregðast rétt við. Auk þess þurfa þau sem vinna að merkinu að geta haft góða yfirs!n yfir slysstað og þora að leggja hönd á plóg við að aðstoða.