Hafa samband
Ertu með spurningar um skátastarf, þátttöku, viðburði eða annað sem tengist Bandalagi íslenskra skáta?
Við erum hér til að hjálpa og svörum fyrirspurnum eins fljótt og auðið er.
Fylltu út formið hér til hliðar og við höfum samband við þig.
Contact Us
We will get back to you as soon as possible.
Please try again later.
Spurt og svarað
Hvað er gert í skátunum?
Í skátastarfi takast skátarnir á við verkefni og áskoranir sem hæfa bæði aldri og þroska þeirra. Þetta geta verið verkefni á borð við að læra kveikja eld, læra leiki og söngva, búa til hengirúm, poppa yfir opnum eldi, takast á við verkefni sem hópur, læra skyndihjálp, læra að búa sig fyrir útivist, tálga, sigla á kajökum og margt fleira því viðfangsefnin eru jafn fjölbreytt og hugurinn girnist.
Í gegnum öll þessi verkefni öðlast skátinn reynslu og þekkingu sem mun nýtast honum í gegnum lífið. Í skátastarfi á skátinn að geta axlað ábyrgð á og lokið þeim verkefnum sem hann tekur að sér, lifað lífinu af ánægju og öðlast hugrekki til þess að láta drauma sína rætast og nýta tækifærin sem skapast.
Hvernig finn ég skátafélag?
Þú skráir þig í skátastarf í þínu hverfi eða bæjarfélagi.
Hér er hægt að sjá lista yfir öll skátafélög og hvar þau er að finna.
Einnig má hafa samband við skátamiðstöðina í síma 550 9800 eða skatarnir@skatarnir.is til að finna skátafélag.
I'm a foreigner, can I or my child join?
Yes scouting is for everyone and anyone is welcome to join!
You can find a scout group in your neighbourhood here or contact our office for more information.
In our office we have staff that will gladly answer your questions and guide you in the right direction to start your scouting adventure in Iceland.
Hvað kostar að vera í skátunum?
Það kostar ekkert að koma og prófa skátastarf, t.d. með því að mæta á nokkra skátafundi. Ef ætlunin er að halda áfram þarf að skrá sig í skátafélagið og greiða félagsgjald.
Félagsgjöld eru greidd til þess félags sem skátinn er skráður í. Það getur verið misjafnt milli skátafélaga hvað er innifalið í félagsgjaldinu. Hjá sumum er allt innifalið en hjá öðrum eru útilegur og skátaferðir ekki innifalið og þá er greitt fyrir það sérstaklega þegar við á. Skátafélögin veita nánari upplýsingar um félagsgjald sitt og hvað er innifalið í því.
Í öllum sveitarfélögum landsins má nýta frístundastyrk til að greiða félagsgjöldin. Það er þó ólíkt milli sveitarfélaga hvað frístundastyrkurinn er hár og fyrir hvaða aldur hann gildir. Hægt er að nálgast upplýsingar um styrkinn á vefsíðum sveitarfélaganna eða hjá viðkomandi bæjarskrifstofu. Skátafélögin geta einnig aðstoðað við upplýsingaöflun í þessum málum.
Kostnaður á þó ekki að vera fyrirstaða í skátastarfi og alltaf hægt að leita lausna í samstarfi við skátafélagið.
Þarf að kunna eitthvað fyrirfram til að geta verið með í skátunum?
Nei! Eina skilyrðið til að vera með í skátunum er að vilja vera með!
Tungumálakunnáttu, líkamlegrar færni eða annarrar hæfni er ekki krafist. Öll eiga að geta verið með í skátastarfi og er einmitt kosturinn við skátastarf hve auðvelt er að aðlaga það að hverjum þeim sem langar að taka þátt og taka þannig vel á móti fjölbreyttum einstaklingum með ólíkar þarfir.
Eru foringjar með viðeigandi þjálfun?
BÍS leggur áherslu á að þau sem starfi sem sveitarforingjar í skátafélögum hafi farið á 12 tíma skyndihjálparnámskeið, Verndum þau námskeið og foringjanámskeið. Einnig þurfa öll fullorðin sem koma að skátastarfi að samþykkja að BÍS afli heimilda úr sakaskrá og skrifa undir sæmdarheit BÍS.
Er skátastarf tengt trúfélögum?
Almennt mætir skátinn sjálfur á skátafundi.
Foreldrum og aðstandendum barna í skátastarfi er boðið að leggja sitt af mörkum til að styðja við starfið í gegnum sjálfboðaliðastarf. Þátttaka foreldra, forsjáraðila eða annara aðstandenda í skátastarfinu getur til dæmis verið í formi þess að koma með og upplifa skátaferðir og skátaútilegur, hjálpa til á skátafundum, skipuleggja fjáraflanir, sinna viðhaldi í skátaheimilinu og margt fleira.
Þó er fjölskylduskátar undantekningin Skátahreyfingin er opin fyrir öll sem fylgja markmiðum hennar, Grunngildum og Skátaaðferðinni, óháð trú.á þessu, þar sem fjölskyldan mætir saman á skátafundi í fjölskylduskátastarfi.
Hvaða búnað þarf að eiga?
Skátastarf fer mikið fram utandyra og er nauðsynlegt að koma klædd eftir veðri í alla skátadagskrá hvort sem það er skátafundur, skátaútilega eða annar viðburður.
Þegar farið er í útilegur, mót eða aðra viðburði þurfa skátarnir oft að taka með sér svefnpoka og dýnu, bakpoka sem getur borið allt en einnig er gott að eiga minni bakpoka fyrir styttri göngur og/eða ferðir.
Oft er kostnaðarsamt að leggja út fyrir búnaði og þá getur verið gott að athuga hjá vinum eða ættingjum hvort einhver eigi til að lána eða gefa. Einnig getur verið sniðugt að kíkja í nytjamarkaði eða sölusíður á netinu til að athuga hvort hægt sé að kaupa notaðan búnað.
Skátaskyrtur og annan fatnað er hægt að kaupa í Skátabúðinni eða kaupa notað frá eldri skátum sem hafa mögulega stækkað upp úr sínum flíkum.
Hér er til dæmis facebook hópur tileinkaður sölu og skiptum á notuðum skátabúnaði.Describe the item or answer the question so that site visitors who are interested get more information. You can emphasize this text with bullets, italics or bold, and add links.
Hvað eru skátalögin og skátaheitið?
Skátaheitið er loforð sem skátinn gefur sjálfum sér, eins konar persónuleg áskorun um að gera sitt besta. Þegar skátinn vinnur skátaheitið er hann að taka fyrsta meðvitaða skrefið á sjálfsnámsbrautinni til að verða sjálfstæður, virkur og ábyrgur samfélagsþegn.
Siðferðileg gildi skátahreyfingarinnar eru sett fram á skipulegan hátt í skátalögunum. Skátalögin eru þó miklu meira en bara skipulagskerfi hugmynda. Þau eru í raun hegðunarmynstur sem ungt fólk getur valið að fylgja og nota til að móta stefnu sína í lífinu. Til þess að vera sjálfum sér samkvæmur þarf hver einstaklingur að hugsa og haga sér í samræmi við eigin gildi.
Hér má sjá skátalögin, skátaheitið og bræðralagssönginDescribe the item or answer the question so that site visitors who are interested get more information. You can emphasize this text with bullets, italics or bold, and add links.
Hvar get ég lesið meira um skátastarf?
Hægt er að lesa meira um skátastarf í bókinni „Hvað er skátastarf“ sem má nálagst rafrænt hér.


