Kamarinn

Aldursbil :

Drekaskátar, Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar


Markmiðaflokkar :

Skapandi hugur, Heimurinn og umhverfið, Tilveran mín, Lausnaleit, Náttúran, Áskoranir, Líkaminn

Kamarinn

Kröfur :


Til að fá færnimerkið „Kamarinn” þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:

• Ræða hvernig hægt er að gera kamarinn eða ferðasalernið að öruggum og eðlilegum stað

• Ræða hvernig þú hugsar um líkama þinn þegar þú ert í útilegu eða á ferð þannig að þér líði líkamlega vel. Um hvað þarftu að hugsa til að viðhalda hreinlæti þegar kemur að mataræði, svefni og andlegri heilsu?

• Hafa talað um magaverki, að hafa lausar eða harðar hægðir og hvernig maður meðhöndlar það þegar maður hefur ekki aðgang að heimili og salerni. 

Lýsing:


Við förum á klósettið á hverjum degi og yfirleitt án þess að hugsa mikið um það. Það er mikilvægur hluti af daglegu heilbrigði okkar. Ef allur líkaminn á að vera hamingjusamur þurfum við að hugsa um meltinguna sem aftur hefur áhrif á allan líkamann. Þegar við erum úti í ævint!raferðum getur verið ein flóknasta og erfiðasta ákvörðunin, hvar, hvenær og hvernig ætti ég að gera þarfir mínar? Hvernig geri ég það á hreinlegan og öruggan hátt?