Varðeldur
Aldursbil :
Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Skapandi hugur, Ímyndunarafl og listræn tjáning, Hugurinn

Kröfur :
Til að fá færnimerkið „Varðeldur“ þarftu að þekkja til og geta s!nt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:
• Taka þátt í þremur mismunandi varðeldum/kvöldvökum t.d. með sveitinni þinni, félaginu þínu eða á skátamóti.
• Lærðu a.m.k. fimm n!ja varðeldasöngva (sem þér finnst skemmtilegir).
• Lærðu varðeldasöng á framandi tungumáli.
• Taktu þátt í að flytja skemmti- eða söngatriði með flokknum þínum við varðeld/á kvöldvöku.
Lýsing:
Hugtakið varðeldur er í skátastarfi annað orð yfir kvöldvöku og er notað þegar skátar safnast saman, oft í lok dags, oft við varðeld en ekki alltaf. Fyrir mörg er varðeldurinn einn af hápunktum dagsins þar sem þau njóta samverunnar og deila upplifunum, sögum, söngvum og skemmtiatriðum fluttum af skátunum sjálfum. Varðeldar geta brunnið bæði hratt og rólega, stutt og lengi og verið alþjóðlegir eða staðbundnir. Margir söngvarnir eru vel þekktir, aðrir framandi, sumir á íslensku og aðrir á framandi tungu. Við suma eru hreyfingar, misflóknar og erfiðar. Taktu þátt í varðeldum, deildu söng- eða leikhæfileikum þínum, lærðu nýja söngva, hlustaðu á snarkið í eldinum og njóttu stemningarinnar. Eins og annað í skátastarfi sn!st varðeldurinn um virka þátttöku skátanna sjálfra í að skapa gæðastund og stemningu.







