Ísfær

Aldursbil :

Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar


Markmiðaflokkar :

Skapandi hugur, Heimurinn og umhverfið, Tilveran mín, Lausnaleit, Náttúran, Áskoranir, Líkaminn

Ísfær

Kröfur :


Til að fá færnimerkið „Ísfær” þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:

• Þekkja og kunna á þann búnað sem nauðsynlegt er að hafa áður en lagt er út á ísinn

• Þekkja hvar mest hætta er á þunnum ís og hvernig er hægt að átta sig á þykkt íssins

• Læra hvernig á að hjálpa einhverjum sem dottið hefur niður um vök

• Reyna að toga þig áfram á ís með hjálp ísbrodda

• Prófa að stunda útivist á ís, svo sem að skauta, veiða í gegnum vök eða skíða

• Ef mögulegt er: prófa að synda í ísvök og koma þér aftur upp á ísinn

Lýsing:


Að fara út á frosið vatn gefur þér tækifæri til að njóta þekkts umhverfis frá algjörlega nýju sjónarhorni. Ísinn býður upp á ýmsa skemmtilega notkunarmöguleika svo sem skauta, veiði í gegnum vök eða einfaldlega að njóta víðáttunnar. Þó að ísinn sé skemmtilegt leiksvæði er einnig mikilvægt að þekkja mögulegar hættur og hvernig best er að hegða sér til að koma í veg fyrir þær. Að þekkja eiginleika íssins, hvaða útbúnað þarf að hafa og hvernig á að meta áhættu er skylduþekking allra þeirra sem hætta sér út á hálan ís.