Hnífurinn

Aldursbil :

Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar


Markmiðaflokkar :

Heimurinn og umhverfið, Skapandi hugur, Tilveran mín, Samfélagið, Ímyndunarafl og listræn tjáning, Sjálfstraust-sjálfsábyrgð og sjálfsþekking

Hnífurinn

Kröfur :


Til að fá færnimerkið „Hnífurinn“ þarftu að geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:

• Hvernig nota skal hníf án þess að slasa sjálfan þig eða aðra

• Hvernig á að afhenda öðrum hníf og ganga frá honum eftir notkun

• Sýna fram á rétta meðhöndlun hans svo hann skemmist síður eða ryðgi

• Þekkja til helstu laga um hnífa og notkun þeirra

• Vita hvað mismunandi hlutar hnífa kallast

• Kunna að brýna hnífinn

• Tálga eitthvað nytsamlegt á öruggan máta (sem foringinn þinn hefur samþykkt fyrirfram)

Lýsing:


Hnífur er öflugt, fjölnota verkfæri sem getur einnig verið hættulegt sé óvarlega farið. Best er að gera verkefni sem eru líkust raunverulegum aðstæðum svo ljóst sé hvenær sé við hæfi að beita hnífnum og þá hvernig. t.d. með því að nota hann til að undirbúa öll stig varðelds, skera bönd/reipi í súrringar eða til að skera út tótem. Það að fá að bera merkið segir meira um þroska og ábyrgð skátans en þekkingu hans á notkun hans. Það er í höndum skátaforingjans að meta hvort skátinn hafi öðlast þá þekkingu og s!ni þá ábyrgð sem þarf til að nota hnífinn í skátastarfi.