Bál
Aldursbil :
Dróttskátar, Rekkaskátar
Markmiðaflokkar :
Heimurinn og umhverfið, Náttúran

Kröfur :
Til að fá færnimerkið Bál þarftu að þekkja til og geta sýnt skátafélögum þínum og foringja að þú þekkir og kunnir skil á því sem færnimerkin Neisti og Logi krefjast af þér, ásamt því að kunna skil á eftirfarandi:
• Finna eldivið í náttúrunni og geta kveikt upp góðan eld og látið hann loga lengi, t.d. með vasahníf og eldspýtum.
• Þekkja mismunandi báltegundir og vita hvaða aðferðir er best að nota t.d. við eldamennsku.
• Geta þekkt ólíkar trjátegundir og vita hvernig mismunandi viður hagar sér í eldi, t.d. hvaða viður gefur mesta hitann eða snarkar mest í.
• Hafa prófað að kveikja upp eld með öðru en eldspýtu/kveikjara, t.d. með stækkunargleri eða eldstáli.
Lýsing:
Bál er framhald af færnimerkinu Logi. Með því að vinna að þessu merki nærðu góðum tökum á öllu sem viðkemur því að meðhöndla eld á ábyrgan hátt.








