Þytur í laufi: 15-25 mín

Leikir og dagskrárhugmyndir

Tegund leiks


Samvinnuleikir, Traustæfingar

Hvað þarf:


Slétt opið svæði sem ekki er hægt að renna til á. A.m.k. 10 þátttakendur. 

Hvað á að gera:


Myndið hring með ca 10-15 manns, fleirri í hringnum og hringurinn verður of víður til að vera öruggur eða að gagni. Bjóðið einum til að standa í miðjum hringnum með fætur saman og handleggi krosslagða yfir bringu. Þegar allir eru tilbúnir mun sá sem á að falla loka augunum (valkvætt) og láta sig falla í eina átt – skiptir ekki máli í hvaða átt. Sá sem fellur ætti að láta fætur vera á sama stað allann tímann. 


Það er gott að láta þann sem fellur ganga um allann hringinn fyrst í stað svo allir fái tilfinningu fyrir því að styðja viðkomandi. Það er mikilvægt að það séu alltaf tveir sem styðja í einu svo það verði ekki slys. 


Þegar fyrsta hringnum er lokið má hringurinn láta þann sem er í miðjunni falla um hringinn tilviljanakennt. Það á ekki að hrinda, það á að láta þann sem er í miðjunni ganga á milli sín. Það kann að vera að sá í miðjunni sé sama og vilji meiri hraða en það geta nokkrir í hringnum fengið bakþanka um reyna sjálfir ef þeim finnst hringurinn ekki vinna sína vinnu öruggt. 


Annað:


Stutt lýsing


Slétt opið svæði sem ekki er hægt að renna til á. A.m.k. 10 þátttakendur. 

Frábær leikur til að mynda góð tengsl og væntumþykju innan hóps. 


Yfirlit: Þátttakandi stendur í miðju hrings annarra þátttakenda sem passa hann/hana. Sá sem stendur í miðjunni lokar augunum og hallar sér fram og tilbaka innan hringsins og aðrir láta hann/hana ganga á milli sín.