Þróunarleikurinn

Leikir og dagskrárhugmyndir

Tegund leiks


Leikir og þrautir, Aflgjafi, Brjóta ísinn

Hvað þarf:


8-15 þátttakendur

Hvað á að gera:


Eins og allir vita er lífssaga kjúklinga skemmtileg. 


Fyrst eru þau egg, svo kjúklingur, hæna, krókódíll, risaeðla og svo ofurhetja.  


 Allir byrja sem egg. Til að þróast áfram þarf að hitta annað egg

og fara leikinn skæri blað steinn. Sá sem vinnur þann leik

þróast. Kjúklingar leita að kjúklingum til að þróast, hænur að

hænum... og áfram þannig.


Að lokum eiga að vera eftir eitt egg, einn kjúklingur, ein hæna, einn krókódíll, ein risaeðla

og afgangurinn er ofurhetjur.


Mikilvægt er að nota mikil hljóð og ýktar hreyfingar í leiknum :)

Annað:


Stutt lýsing


8-15 þátttakendurLeikurinn er skemmtilegt tvist á steinn skæri blað.