Stjórnunarleikurinn: 10-15 mín

Leikir og dagskrárhugmyndir

Tegund leiks


Lokun, Aflgjafi, Upphitun, Brjóta ísinn

Hvað þarf:


10+ þáttt. og opið svæði. 

Hvað á að gera:


Hópurinn situr/stendur í hring. Er’ann fer afsíðis á meðan stjórnandi er valinn. Stjórnandin byrjar á hreyfingu (t.d. að spila á hljóðfæri með hljóðum og er þá hljómsveitarstjóri) og allir í hringnum herma eftir. Stjórnandinn skiptir reglulega um hreyfingu og aðrir fylgja á eftir svo lítið beri á. Er’ann stendur í miðjum hringnum og reynir að finna út hver stjórnandinn er. Leiðbeinandi ákveður hversu margar tilraunir eru leyfðar. Þegar sjórnandinn næst þá fer hann afsíðis og er’ann í næsta leik. 



Annað:


Stutt lýsing


10+ þáttt. og opið svæði. 

Þessi kemur oft bros á vör. 

Yfirlit: Í stórum hring er einn sem stjórnar hreyfingum allra, er’ann reynir að komast að því hver stjórnar.