Senda skilaboð: 10-15 mín
Leikir og dagskrárhugmyndir
Tegund leiks
Brjóta ísinn, Lokun
Hvað þarf:
10+ þátttakendur, opið svæði.
Hvað á að gera:
Allir sitja/standa í hring og haldast í hendur þannig að hendur sjáist greinilega úr miðju hringsins. Leikurinn þarf einn til að vera í miðjunni og á að stöðva skilaboðinn. Tveir aðrir eru sendandi og móttakandi. Skilboð eru send með því að kreista hönd þess sem maður helst í hendur við og þannig ganga skilaboðin á milli manna. Sendandi tilkynnir “skilaboð farin af stað” og móttakandi “ skilaboð móttekin” til að er’ann viti hvenær hann/hún eigi að byrja að leita og hætta. Ef er’ann sér að skilaboð eru að ganga á milli manna, þ.e. þátttakendur kreista hendur þá stöðvast skilaboðin og sá sem upp um komst fer inn í hringinn og leikur hefst að nýju.
Annað:
Stutt lýsing
10+ þátttakendur, opið svæði.
Rólegur leikur sem reynir á eftirtekt allra. Mjög mikilvægt að vera sanngjarn.
Yfirlit: Allir sitja í hring og leiðast. Leikurinn gengur út að að senda “skilaboð” í gegnum hendur þátttakenda og einn í miðju reynir að stöðva sendinguna.








