Salt og pipar

Leikir og dagskrárhugmyndir

Tegund leiks


Upphitun, Lokun, Stuttir leikir

Hvað þarf:


Eitthvað sem markar línu á jörðinni, minnst 8 þátttakendur (?). 

Hvað á að gera:


Línan sker í sundur tvö svæði, annað er salt og hitt pipar. Þátttakendur byrja allir öðrum megin. Leiðbeinandin segir salt eða pipar og þátttakendur koma sér þangað sem leiðbeinandinn býður. Leiðbeinandi reynir að sjálfsögðu að rugla þátttakendur með því að endurtaka, snúa út úr, segja hljómlík orð. Þeir eru úr sem gera villu eða eru seinir. Þetta þarf ekki að vera salt og pipar, má vera hundur og köttur. 

Annað:


Stutt lýsing


Eitthvað sem markar línu á jörðinni, minnst 8 þátttakendur (?). 

Tímalaus leikur, allir hafa farið í þennan í einhverri útgáfu. 


Hópurinn stendur línu/röð, allir reyna að vera réttum megin við línu eins og leiðbeinandinn skipar fyrir.