Líttu upp – líttu niður: 2-5 mín

Leikir og dagskrárhugmyndir

Tegund leiks


Stuttir leikir, Lokun, Aflgjafi

Hvað þarf:


Svæði fyrir hópinn í hring, minnst 10 þátttakendur. 

Hvað á að gera:


Allir standa í hring. Leiðbeinandinn segir öllum að líta niður, þegar leiðbeinandinn segir: “líttu upp” þá eiga allir að horfa beint á einhvern annan í hringnum og engan annan. Það verður að horfa á einhvern ekki út í loftið. Ef einhverjir tveir eru að horfa beint á hvorn annan þá eiga þeir að öskra hátt og eru þá út. Leikurinn heldur áfram, leiðbeinandinn segir “líttu niður” og allir horfa niður. “Líttu upp” og allir horfa á einhvern. Leiknum lýkur þegar tveir eru eftir. 

Annað:


Stutt lýsing


Svæði fyrir hópinn í hring, minnst 10 þátttakendur. Staðið í hring, litið upp og niður eins og beðið er um og tengsl mynduð.