Náði þér (Gotscha): 5 mín
Leikir og dagskrárhugmyndir
Tegund leiks
Lokun, Stuttir leikir
Hvað þarf:
Opið svæði til að mynda stóran hring, handleggja lengd á milli þátttakenda. Minnst 2 og 5-10 mínútur.
Hvað á að gera:
Hópurinn stendur í hring og setur hendur út með fram síðum í ca. axlarhæð. Látið vinstri vísifingur snúa niður og hægri lofa snúa upp. Allir gera hið sama og þá ætti vinstri vísifingur að benda ofan í hægri lófa hjá öllum. Að sjálfsögðu á fingurinn að vera mjög nærri lófanum. Þegar skipunin “nú” eða “núna” kemur frá leiðbeinanda eiga allir að reyna grípa vísifingur næsta manns og reyna að forða sínum eiginn. Mikið hlegið og fíflast, endurtakið og biðjið þátttakendur að hrópa “Náði þér” þegar fingur næst. Endurtakið nokkrum sinnum, víxlið handstöðu þ.e. notið vinstri lófa og hægri vísifingur. Takið eftir hvernig fingur færast fjær lófum og lófar verða kúptari. Allir ættu að vera orðnir hressir eftir nokkarar umferðir af þessum.
Annað:
Stutt lýsing
Opið svæði til að mynda stóran hring, handleggja lengd á milli þátttakenda. Minnst 2 og 5-10 mínútur.
Þessi vekur alltaf kátínu.
Yfirlit: Leikurinn gengur út að grípa vísifingur og forða sínum eiginn.








