Fallið í faðma: 10-20 mín
Leikir og dagskrárhugmyndir
Tegund leiks
Samvinnuleikir, Traustæfingar
Hvað þarf:
Slétt, opið svæði sem ekki er hægt að renna til á. A.m.k. tvo þátttakendur. 10-20 mín.
Hvað á að gera:
Þetta er einn af þeim leikjum sem æfir hæfni þátttakenda í að passa hvort annað. En dulinn ávinningur er að einnig vinnst traust og samkennd. Yfirleitt uppgötvar fólk það ekki fyrr en eftir á.
Byrjið á að sýna hvernig gert er áður en hópnum er skipt upp í pör til reyna sjálf. Farið í skýrt í aðferðina og verið viss um að þátttakendur taki það alvarlega sem á að gerast. Þetta á að vera skemmtilegt en möguleikinn á slysum sannarlega fyrir hendi, bæði líkamlegur skaði og andlegur.
Biðjið um sjálfboðaliða – sá sem fellur – til að standa með bakið að þér og láta sig falla í hendurnar á þér. Sá sem fellur þarf að vera stífur sem spýtukarl og láta ökklann beygja með þegar hann lætur sig falla. Gott er að hafa hendur krosslagðar yfir bringu til að þær verði ekki fyrir.
Sá sem grípur setur upp stuðarann, hendur fyrir framan bringu og lófa fram, og hefur fætur fyrir aftan hvorn annan til að hafa gott jafnvægi. Talið saman, þegar báðir eru tilbúnir þá á að segja það og sá sem á að falla getur látið sig falla í faðm þess er grípur. Þegar búið er að grípa þann sem fellur eru honum lyft upp í standandi stellingu aftur. Gott er að byrja með hendur á öxlum þess sem lætur sig falla til að auka sjálfstraust og til að finna hvernig þetta gengur allt fyrir sig. Þegar líður á æfinguna þá er hægt að auka bilið og á láta sig falla lengra. Fallið á aldrei að vera meira en það sem fólk treystir sér til. Þegar þátttakendur finnst nóg komið þá skal hætta. Hvetjið þátttakendur að stíga aðeins lengra en þó alltaf þannig að ákvörðunin sé þeirra. Þegar tími er tilkominn þá skulu þátttakendur skipta um hlutverk og endurtaka.
Annað:
Tilbrigði: Þrír vinna saman, einn stendur í miðjunni og lætur sig falla á milli tveggja. Sömu reglur. Gott að taka strax á eftir tveggja manna útgáfunni.
Stutt lýsing
Slétt, opið svæði sem ekki er hægt að renna til á. A.m.k. tvo þátttakendur. 10-20 mín.
Traustsæfingin með ákveðnum greini til að æfa hvernig við pössum hvort annað og búum til traust í hópnum.
Þátttakandi stendur og hallar sér í faðm annars og er hjálpað í standandi stöðu aftur. Þá má halda áfram og halla sér alltaf lengra og lengra aftur með hverri tilraun.








