Fallið: 15-30 mín
Leikir og dagskrárhugmyndir
Tegund leiks
Samvinnuleikir, Traustæfingar
Hvað þarf:
Opið svæði, stall til að falla af sem er á milli maga-og bringuhæðar þátttakenda. Aldrei færri en 6-8 til að grípa þann sem fellur. Hóp sem er tilbúinn andlega og líkamlega til að takast á við áskoruninna.
Hvað á að gera:
Einn er sjálfboðaliði sem ætlar að láta sig falla. Hópurinn skiptir sér í tvennt og stendur þétt á móti hvor öðrum. Hendur eru settar upp og standa út frá maga. Handstaðan: Lófar upp og fingurbroddar að þeim sem er á móti. Hafið hendurnar þétt saman þannig að það myndist “dýna” til að lenda á.
Sjálboðaliðinn stendur upp á stallinnum, hefur hendur á bringu, er stífur sem spýtukarl (hallið höfðinu örlítið aftur til að halda því). Þegar allir eru tilbúnir og gefið merki um að allir séu tilbúnir þá má sjálfboðaliðinn láta sig falla og hópurinn grípur hann.
Látið hópinn skipta um hlutverk, vera nálægt staðnum þar sem sjálfboðaliðinn fellur og fjarri honum. Fáið nýja sjálfboðaliða til að falla. Ef hópurinn er mjög stór má bæta því við að láta þann sem fellur liggja áfram og láta hópinn færa þann sem féll til enda og láta hann niður þar.
Þegar sá sem lét sig falla er setur á jörðina er best að setja fæturnar fyrst á jörðina og ýta svo undir bakið þannig að hann/hún stendur upp sjálf. Reynið að fá alla til að reyna, lágmark er að standa á stallinum og líta niður. Það má alltaf hætta við. Allir verða virða ákvörðun hvers og eins. Spjallið saman um var að gerast.
Annað:
Stutt lýsing
Opið svæði, stall til að falla af sem er á milli maga-og bringuhæðar þátttakenda. Aldrei færri en 6-8 til að grípa þann sem fellur. Hóp sem er tilbúinn andlega og líkamlega til að takast á við áskoruninna.
Meiriháttar upplifun. Verið alveg viss um að hópurinn sé tilbúinn til að takast á við jafnkrefjandi leik og Fallið er.
Hópurinn grípur þátttakenda sem lætur sig falla af stalli.








