Ég treysti þér en...: 15-20 mín

Leikir og dagskrárhugmyndir

Tegund leiks


Samvinnuleikir, Traustæfingar

Hvað þarf:


Opið, slétt svæði, lágmark einn félaga á hvern blindingja, 

Hvað á að gera:


Biðjið um sjálfboðaliða sem á að hlaupa að félögum sínum. Raðið upp þeim sem 

eiga að passa blindingjan, stuðarann upp og tilbúinn. Hlauparinn er blindaður og þegar allir eru tilbúnir þá skokkar hlauparinn í átt félögum sínum, fæstir munu reyna spretthlaup en að sama skapi er leikurinn tilgangslaus ef hlauparinn gengur rólega. Ef þið sjáið ástæðu til, látið félaga vera inn á vellinum til að aðstoða hlauparann ef eitthvað kemur upp á. Sá á að hafa hljóð og ekki vera fyrir. 


Það sem á að gerast er að félagarnir hafa vökult auga með hlauparanum og með stuðarann uppi. Þegar hlauparinn kemur á að stöðva hann mjúklega með höndunum. Það á ekki að stöðva hlauparann snögglega eða með tæklingu. Félagarnir eiga einnig að hafa hljóð, líka þegar þeir færa sig til að taka á móti hlauparanum. Þetta er til þess að hlauparinn viti ekki hvenær hann nær endamörkum. 


Það sem mun gerast er að hlauparinn mun hægja á sér þegar hann telur sig nærri endamörkum, sem er eðlilegt. Sumir munu jafnvel stoppa áður en kemur til að stöðva þá. 

Hér er fullt af reynslu sem krakkarnir geta deilt með sér. Talið um hvað það er að treysta, hvernig það er að vera hlaupari, hvers vegna fólk hægði á sér. 



Annað:


Stutt lýsing


Opið, slétt svæði, lágmark einn félaga á hvern blindingja, 

Klassískur traustsleikur sem jafn gaman er að fylgjast með og það er að leika hann. Nauðsynlegt að byrja á þessum ef ætlunin er að fara í leikinn Fallið. 


Úr ca. 50 metra fjarlægð hleypur/skokkar blindaður þátttakandi í átt að félögum sem bíða hans og passa.