Troðið á tánum (3. útg). 5-10 mín
Leikir og dagskrárhugmyndir
Tegund leiks
Upphitun / aflgjafar
Hvað þarf:
A.m.k. eitt par. Opið svæði fyrir lætin sem fylgja. New Paragraph
Hvað á að gera:
Andstæðingar standa á móti hvor öðrum og keppast síðan við að stíga á tærnar á hvor öðrum. Notum þrjú tilbrigði sem við tökum í röð hvert á eftir öðru því leikurinn þyngist með hverju tilbrigði. Leyfið þátttakendum að spreyta sig við nokkra þátttakendur áður en nýtt tilbrigði er kynnt.
Þegar annar þátttakandin hefur troðið hinum um tær þá lyfta báðir upp handleggnum sem merki um að þeir séu fríir og vilji leika aftur. Sem sagt maður finnur næsta lausa mann og hefur leikinn að nýju. Það má aldrei keppa oftar en einu sinni við sömu manneskjuna.
Annað:
Tilbrigði 1: Þátttakendur haldast í báðar hendur (þá ekki með því að setja fingur á milli fingra).
Tilbrigði 2: Andstæðingar setja hendur á axlir hvor annars.
Tilbrigði 3. Andstæðingar snertast ekki (nema með tánum!)
Andstæðingar standa á móti hvor öðrum og keppast síðan við að stíga á tærnar á hvor öðrum. Notum þrjú tilbrigði sem við tökum í röð hvert á eftir öðru því leikurinn þyngist með hverju tilbrigði. Leyfið þátttakendum að spreyta sig við nokkra þátttakendur áður en nýtt tilbrigði er kynnt.
Þegar annar þátttakandin hefur troðið hinum um tær þá lyfta báðir upp handleggnum sem merki um að þeir séu fríir og vilji leika aftur. Sem sagt maður finnur næsta lausa mann og hefur leikinn að nýju. Það má aldrei keppa oftar en einu sinni við sömu manneskjuna.
Stutt lýsing
A.m.k. eitt par. Opið svæði fyrir lætin sem fylgja. Pörin keppast við að stíga á tærnar á hvor öðrum.








