Sláð’ann 5-10 mín
Leikir og dagskrárhugmyndir
Tegund leiks
Kynningarleikir / Brjóta ísinn
Hvað þarf:
A.m.k. 10 manns og opið svæði til að mynda hring, einn einangrunarhólk.New Paragraph
Hvað á að gera:
Leiðbeinandi biður alla að standa í hring og ákveða eitt dýr sem er uppáhaldsdýrið þeirra t.d. hestur, selur, kjúklingur o.s.frv. Allir eiga að búa til hreyfingu og hljóð fyrir þetta dýr. Það getur verið gott að hafa eitt dýr til vara ef einhver skyldi velja það sama. Takið stuttan tíma í þetta.
Allir í hringnum sýna núna dýrið sitt með hreyfingu og hljóði (það þarf kannski að endurtaka) Þegar allir hafa sýnt dýrið sitt getur leikurinn hafist. Leikurinn gengur út á að þátttakendur sýna dýrahreyfingu og –hljóð einhvers annars í hringnum og sá sem á þetta dýr verður að vera snöggur til og sýna dýr einhvers annars og svo koll af kolli. Einn þátttakandi er í miðjunni og heldur á hólknum góða og er tilbúinn að slá í fætur þess sem er ekki nógu snöggur til að sýna dýr einhvers annars. Sá sem er sleginn fer inn í miðju hringsins og leikurinn heldur áfram.
Annað:

Stutt lýsing
A.m.k. 10 manns og opið svæði til að mynda hring, einn einangrunarhólk.Í stað nafna velja allir sér dýr og hreyfingu og hljóð sem fylgir dýrinu. Þátttakendur kallast á með dýrahreyfingum og –hljóði. Einn í miðjunni reynir að koma sér þaðan með því að slá í þá sem eru seinir til.