Sherpa ganga

Leikir og dagskrárhugmyndir

Tegund leiks

Samvinnuleikir og traustæfingar

Hvað þarf:

Eitthvað til að blinda þátttakendur með, t.d. húfur, klútar og buff. Opið svæði til að ganga um, ekki endilega slétt. New Paragraph

Hvað á að gera:

Allir þátttakendur eru blindaðir og raða sér í línu og haldast í hendur. 

Leiðbeinandinn segir þeim að hann fari fremstur og muni taka þau smá ferðalag. Línan má ekki slitna á þessu ferðalagi og allir verði að passa hvorn annan. Hópurinn verður að tala saman á meðan á þessari ferð stendur því að leiðbeinandinn hlustar bara á fremsta mann. Þannig að ef línan slitnar þá verður hópurinn að koma skilaboðum til fremsta manns um að stöðva leiðbeinandann. Fremsti maður biður leiðbeinanda um að stoppa, hægja, halda áfram o.s.frv. 

Leiðið hópinn um gott svæði, farið varlega og ekki velja svæði sem er hættulegt. Þegar leik er lokið ræðið stuttlega við hópinn um traust og samvinnu, hvað virki og hvað virki ekki. 

Annað:

Stutt lýsing

Eitthvað til að blinda þátttakendur með, t.d. húfur, klútar og buff. Opið svæði til að ganga um, ekki endilega slétt. 

Fylgið-leiðbeinandanum-leikur, mikið fjör og æfir samskipti, að gæta sín og annarra og byggir upp traust. 

Þátttakendur haldast í hendur í línu, eru blindaðir og þurfa að fylgja leiðbeinandanum þanngað sem hann/hún leiðir þau.