Plánetustríð: 15-20 mín
Leikir og dagskrárhugmyndir
Tegund leiks
Samvinnuleikir og traustæfingar
Hvað þarf:
Opið svæði og fullt af hringjum af mismunandi stærðum (30 cm-120 cm þvermál) þeir mega vera úr böndum eða húlahringir, a.m.k. 10 þátttakendur. New Paragraph
Hvað á að gera:
Dreifðu hringjunum um svæðið. Hver hringur er pláneta sem geimafararnir búa á.
Til þess að vera löglegur á plánetu þurfa báðir fætur að vera innan hringsins. Þetta er mjög mikilvægt og í raun eina reglan: Báðir fætur verða að vera innan hringsins. Leiðbeinandi biður þátttakendur að koma sér fyrir innan plánetu. Leiðbeinandi biður þátttakendur að skipta um plánetu, það gengur vel fyrst vegna þess að nóg er af plánetum. Síðan dynur ógæfan yfir, plánetum fækkar. Leiðbeinandi fjarlægir hringi einn af öðrum. Færri og færri komast fyrir, það verður barátta um plássið. Að lokum verður bara ein pláneta eftir sem allir verða að komast fyrir á en hringurinn er ekki nógu stór til að allir fætur komist inn fyrir hringinn eða hvað? Hér kemur vandmálið sem hópurinn verður að leysa, hvernig komum við öllum fyrir. Stöðvið hrindingar og stympingar, hvetjið hópinn til að leysa vandamálið í stað þess að rífast og slást. Lausnin felst í skilaboðunum: Báðir fætur verða að vera innan hringsins. Það segir ekkert um að það megi ekki sitjast á rassinn og setja fæturnar inn í hringinn. Ekki segja þeim lausnina fyrr enn þörf krefur og ef þörf krefur. Ákorunin gerir leikinn skemmtilegann.
Annað:
Talið um mikilvægi þess að tala saman og vinna saman frekar en að böðlast áfram með eitthvað sem greinilega virkar ekki. Markmiðið var ekki að fáir ættu pláss á plánetunni, markmiðið var að allir ættu pláss á plánetunni.
Dreifðu hringjunum um svæðið. Hver hringur er pláneta sem geimafararnir búa á.
Til þess að vera löglegur á plánetu þurfa báðir fætur að vera innan hringsins. Þetta er mjög mikilvægt og í raun eina reglan: Báðir fætur verða að vera innan hringsins. Leiðbeinandi biður þátttakendur að koma sér fyrir innan plánetu. Leiðbeinandi biður þátttakendur að skipta um plánetu, það gengur vel fyrst vegna þess að nóg er af plánetum. Síðan dynur ógæfan yfir, plánetum fækkar. Leiðbeinandi fjarlægir hringi einn af öðrum. Færri og færri komast fyrir, það verður barátta um plássið. Að lokum verður bara ein pláneta eftir sem allir verða að komast fyrir á en hringurinn er ekki nógu stór til að allir fætur komist inn fyrir hringinn eða hvað? Hér kemur vandmálið sem hópurinn verður að leysa, hvernig komum við öllum fyrir. Stöðvið hrindingar og stympingar, hvetjið hópinn til að leysa vandamálið í stað þess að rífast og slást. Lausnin felst í skilaboðunum: Báðir fætur verða að vera innan hringsins. Það segir ekkert um að það megi ekki sitjast á rassinn og setja fæturnar inn í hringinn. Ekki segja þeim lausnina fyrr enn þörf krefur og ef þörf krefur. Ákorunin gerir leikinn skemmtilegann.
Stutt lýsing
Opið svæði og fullt af hringjum af mismunandi stærðum (30 cm-120 cm þvermál) þeir mega vera úr böndum eða húlahringir, a.m.k. 10 þátttakendur.
Hrikalega skemmtilegur, lausnin svo einföld að stundum er vonlaust að sjá hana.
Búsvæðum fer fækkandi í geiminum og geimfararnir okkar þurfa að finna stað sem allir komast fyrir á.








