Para-áttavita-ganga 15-20 mín

Leikir og dagskrárhugmyndir

Tegund leiks


Samvinnuleikir og traustæfingar

Hvað þarf:


Opið svæði, ekki endilega slétt. A.m.k. tvo og 10-20 mín. Eitthvað til að binda um augun með. New Paragraph

Hvað á að gera:


Hópurinn skiptir sér í pör. Byrjið á því að annar setur sér takmark í fjarska, kennileiti sem ætlunin er að ganga að og lætur félaga sinn vita hvert kennileitið er. Síðan leggur viðkomandi af stað beint að takmarki sínu, ætlunin er að komast þangað án þess að kíkja eða sjá. Til að allt gangi vel og án slysa fylgir félaginn með fyrir aftan blindingjann og passa hann. Sá sem passar blindingjan má ekki tala við hann eða stýra á nokkurn hátt. Sá sem passar grípur aðeins inn í gönguna ef blindinginn er við það að fara sér að voða.


Best er ef takmark blindingjans eru í 50 til 100 metra fjarlægð. Takið eftir því hversu þátttakendur munu oft á tíðum fara langt af leið. Sumir ganga jafnvel heilann hring. Leyfið báðum að prófa. 


Fylgið eftir með því að tala á léttum nótum um hvað hjálpaði og hvað var til trafala í ferðinni að takmarkinu og hvernig traust þróaðist á milli félaga. Nokkuð algeng niðurstaða er að ef innbyggði áttavitinn segir ein átt en tilfinningin segir annað, treystið áttavitanum. 


Annað:


Tilbrigði:  Látið hálfan hópinn ganga saman að sameiginlegu takmarkið og hin helmingin passa þau. 

Hópurinn skiptir sér í pör. Byrjið á því að annar setur sér takmark í fjarska, kennileiti sem ætlunin er að ganga að og lætur félaga sinn vita hvert kennileitið er. Síðan leggur viðkomandi af stað beint að takmarki sínu, ætlunin er að komast þangað án þess að kíkja eða sjá. Til að allt gangi vel og án slysa fylgir félaginn með fyrir aftan blindingjann og passa hann. Sá sem passar blindingjan má ekki tala við hann eða stýra á nokkurn hátt. Sá sem passar grípur aðeins inn í gönguna ef blindinginn er við það að fara sér að voða.


Best er ef takmark blindingjans eru í 50 til 100 metra fjarlægð. Takið eftir því hversu þátttakendur munu oft á tíðum fara langt af leið. Sumir ganga jafnvel heilann hring. Leyfið báðum að prófa. 


Fylgið eftir með því að tala á léttum nótum um hvað hjálpaði og hvað var til trafala í ferðinni að takmarkinu og hvernig traust þróaðist á milli félaga. Nokkuð algeng niðurstaða er að ef innbyggði áttavitinn segir ein átt en tilfinningin segir annað, treystið áttavitanum. 



Stutt lýsing


Opið svæði, ekki endilega slétt. A.m.k. tvo og 10-20 mín. Eitthvað til að binda um augun með. 

Takið eftir ótrúlegri hæfni fólks til að gjörsamlega týna áttum. Æfum traust og stuðning frá öðrum. 


Blindingi reynir að ganga að takmarki sínu sem er ca. 50 metra í burtu.