Nafnakast: 10-15 mín
Leikir og dagskrárhugmyndir
Tegund leiks
Kynningarleikir / Brjóta ísinn
Hvað þarf:
Gott opið svæði, 8-15 þátttakendur. Þrjá góða hluti til að kasta, t.d. tennisboltar eða svipað. New Paragraph
Hvað á að gera:
Myndið hring. Leiðbeinandi byrjar með því að segja nafn sitt og lætur boltann ganga til þess sem stendur á hægri eða vinstri hönd. Boltinn heldur áfram í þá átt, þátttakendur taka við boltanum, segja nafn sitt og láta boltan ganga. Þannig gengur boltinn hringinn þar til hann kemur að upphafsreit. Leiðbeinandin tekur boltann og kastar honum til einhvers í hringnum og kallar nafn viðkomandi. Sá tekur við boltanum, kastar til næsta og kallar nafn viðkomandi og koll af kolli.
Þegar boltinn hefur verið á flugi í smá tíma 1-2 mínútur eða þegar þátttakendur eru byrjaðir að muna nokkur nöfn þá bætir leiðbeinandin við öðrum bolta. Þetta eykur tíðni nafnakalla og meira fjör færist í leikinn. Bætið við þriðja boltanum bara til að auka fjörið og ruglinginn. Nöfnum og boltum er kastað svo ótt og títt að enginn er með á hreinu lengur hver á að fá hvaða bolta. Ef það eru margir hópar að leika leikinn í einu skuluð þið gera hlé stöku sinnum og skiptast á hluta hópanna svo allir læri nöfnin á öllum.
Annað:
Tilbrigði: Þegar líður á leikinn fjarlægist hvort annað smá saman þannig að það þurfi að kasta boltunum lengra og kalla hærra. Fjölgið líka boltum, 1 bolta á hverja þrjá.
• Sá sem grípur segir “takk fyrir” og nafn kastarans til viðbótar við það sem er þegar gert.
• Þegar leikurinn endar biðjið um sjálfboðaliða til að nefna alla sem tóku þátt í leiknum. Nokkrum mun takast það 100%.
Myndið hring. Leiðbeinandi byrjar með því að segja nafn sitt og lætur boltann ganga til þess sem stendur á hægri eða vinstri hönd. Boltinn heldur áfram í þá átt, þátttakendur taka við boltanum, segja nafn sitt og láta boltan ganga. Þannig gengur boltinn hringinn þar til hann kemur að upphafsreit. Leiðbeinandin tekur boltann og kastar honum til einhvers í hringnum og kallar nafn viðkomandi. Sá tekur við boltanum, kastar til næsta og kallar nafn viðkomandi og koll af kolli.
Þegar boltinn hefur verið á flugi í smá tíma 1-2 mínútur eða þegar þátttakendur eru byrjaðir að muna nokkur nöfn þá bætir leiðbeinandin við öðrum bolta. Þetta eykur tíðni nafnakalla og meira fjör færist í leikinn. Bætið við þriðja boltanum bara til að auka fjörið og ruglinginn. Nöfnum og boltum er kastað svo ótt og títt að enginn er með á hreinu lengur hver á að fá hvaða bolta. Ef það eru margir hópar að leika leikinn í einu skuluð þið gera hlé stöku sinnum og skiptast á hluta hópanna svo allir læri nöfnin á öllum.
Stutt lýsing
Gott opið svæði, 8-15 þátttakendur. Þrjá góða hluti til að kasta, t.d. tennisboltar eða svipað. Þátttakendur láta bolta ganga á milli sín og kalla upp nafn þess sem boltinn gengur til.








