Mólekúlleikurinn 5 mín
Leikir og dagskrárhugmyndir
Tegund leiks
Kynningarleikir / Brjóta ísinn
Hvað þarf:
A.m.k. 10 þátttakendur - helst fleiri og opið svæði.New Paragraph
Hvað á að gera:
Hver þátttakandi er eitt mólíkúl sem sveimar um einmanna með horn (puttar á enni) og segir: “Bzzzz” Einhverra hluta vega er þetta mjög mikilvægt til að leikurinn sé skemmtilegur. Mólekúlinn hópa sig saman eftir því sem leiðbeinandinn býður. Ef leiðbeinandi kallar “fjórir” þá eiga fjögur mólekúl að hópa sig saman og þeir sem ná ekki saman eru úr. Að því loknu sveima mólekúlinn aftur ein þar til leiðbeinandi kallar aðra tölu. Leiknum lýkur þegar tveir eru eftir.
Annað:
Fjörugur leikur sem krakkar 6-8 ára eru hrifnir af. Verður fljótt þurr þannig að leikið hratt og ákaft og stutt.
Tilbrigði: Bannið að sömu þátttakendur hópi sig saman tvisvar í röð. Þá myndast ekki klíka sem lætur keppnisskapið hlaupa með sig í göngur og allir hafa jafna möguleika til að vera með lengur.
Stutt lýsing
A.m.k. 10 þátttakendur - helst fleiri og opið svæði.Leiðbeinandi kallar upp tölur og þátttakendur verða að mynda hópa jafnstórri tölunni sem var nefnd.








