Kafteinninn kallar: 5-10 mín
Leikir og dagskrárhugmyndir
Tegund leiks
Kynningarleikir / Brjóta ísinn
Hvað þarf:
Minnst 15 sjóliða.New Paragraph
Hvað á að gera:
Safnið öllum saman og kennið þeim þau verkefni sem þarf að framkvæma í skipinu. Bendið hópnum fyrst á hvernig skipið liggur þ.e. stefni (framendi), skutur (bakendi), stjórnborði (hægri), bakborði (vinstri). Næst skuluð þið lýsa réttum athöfnum við ýmsum skipunum: “Kafteinninn kemur” – allir standa í réttstöðu og heilsa með hægri hönd. “Skúrið dekkið” – allir fara á fjórar og skrúppa dekkið (gólfið í skipi)
“Maður fyrir borð” – allir leggjast á gólfið við bak-eða stjórnborða. “Í björgunarbátana” – Þrír mynda röð stitjandi á gólfinu og þykjast róa bát.
“Rifið seglin” – tveir taka höndum saman og þykjast hífa upp segl.
Leikurinn hefst með því að allir standa á miðjum leikvellinum. Kafteininn gefur skipanir og sendir alla á milli stjórn-og bakborða, stefnis og skuts. Kafteinninn er masókisti sem hefur gaman af því að senda fólk út um allar trisstur, beygja sig og bugta á skömmum tíma. Leikurinn á að vera hraður og hægt er finna upp sínar eigin skipanir sbr. “kokkurinn kemur” – allir þykjast gubba eða “kolkrabbinn kemur” – fimm mynd hóp, allir með aðra höndina inn að miðju og hina út og snúa sér í hring.
Sjóari er úr þegar hann er síðastur til að framkvæma eða koma sér á réttan stað.
Sjóari er stakur í þau verkefni sem þarf tvo eða þrjá sjóara til að framkvæma.
Annað:
Tilbrigði: Leikið leikinn með útslætti. Sjóliðar eru úr þegar:

Stutt lýsing
Minnst 15 sjóliða.
Klassískur aflgjafi sem krefst hlustunar og skjótra viðbragða.
Einstaklingar og smáir hópar bregðast eins skjótt og mögulegt er við skipunum frá “kafteinninum” til að framkvæma ýmis verkefni um borð á ímynduðu skipi. Hvað þarftu: Stórt opið og afmarkað svæði (gott að nota klifurlínur).