JónGunnaGeir 5 mín
Leikir og dagskrárhugmyndir
Tegund leiks
Kynningarleikir / Brjóta ísinn
Hvað þarf:
Opið svæði, a.mk. 10 þátttakendur. New Paragraph
Hvað á að gera:
Leiknum er ætlað að vera skemmtilegur, ávinningur er ekki mælanlegur. Hins vegar er hægt að koma öllum í gott skap og læða smá keppni í alla. Allir standa í hring, leiðbeinandinn tekur upp skeiðklukkuna (úrið sitt) og tilkynnir að þetta sé tímaþraut. Leiðbeinandinn ætlar að segja nafnið sitt og setja klukkuna af stað, næsti maður á að segja nafnið sitt strax á eftir og svo næsti og koll af kolli. Þegar allir hafa sagt nafnið sitt er klukkan stöðvuð.
Svo má reyna að bæta tímann, það er áhrifamikið að sjá hvernig öll nöfnin renna saman í eina bunu. Keppnin við klukkuna setur alla í keppnisskap og þetta verður mjög hröð yfirferð. Ef hópurinn er lítill farið tvo, jafnvel þrjá hringi. Tilkynnið að tíminn hafi verið heimsmet eða útilífsskólamet, hvað sem er.
Annað:
Tilbrigði: Látið nöfnin fara bæði réttsæli og rangsælis í hringnum. Takið eftir viðbögðum þess sem lendir í miðri nafnabununni þegar hún kemur frá báðum hliðum.
Leiknum er ætlað að vera skemmtilegur, ávinningur er ekki mælanlegur. Hins vegar er hægt að koma öllum í gott skap og læða smá keppni í alla. Allir standa í hring, leiðbeinandinn tekur upp skeiðklukkuna (úrið sitt) og tilkynnir að þetta sé tímaþraut. Leiðbeinandinn ætlar að segja nafnið sitt og setja klukkuna af stað, næsti maður á að segja nafnið sitt strax á eftir og svo næsti og koll af kolli. Þegar allir hafa sagt nafnið sitt er klukkan stöðvuð.
Svo má reyna að bæta tímann, það er áhrifamikið að sjá hvernig öll nöfnin renna saman í eina bunu. Keppnin við klukkuna setur alla í keppnisskap og þetta verður mjög hröð yfirferð. Ef hópurinn er lítill farið tvo, jafnvel þrjá hringi. Tilkynnið að tíminn hafi verið heimsmet eða útilífsskólamet, hvað sem er.
Stutt lýsing
Opið svæði, a.mk. 10 þátttakendur. Hópurinn stendur í hring og segir nöfn sín eins hratt í röð og hægt er.








