Jarðsprengjubeltið: 15-30 mín
Leikir og dagskrárhugmyndir
Tegund leiks
Samvinnuleikir og traustæfingar
Hvað þarf:
Opið svæði, tvær línur til að afmarka upphaf og endi, a.m.k. 10 þátttakendur, notið töskur og föt til að tákna jarðsprengjur. Eitthvað til að blinda með. New Paragraph
Hvað á að gera:
Búið til einhverja skemmtilega sögu um jarðsprengjubeltið og afhverju þátttakendur þurfa að komast yfir (blindaðir). Allir í hópnum eiga að para sig saman. Látið annan aðilann í parinu blinda sig. Þegar annar aðilinn er blindaður þá skuluð þið afmarka völlinn sem er 10 metrar á lengd frá upphafi til enda. Búið til jarðsprengjubeltið með því að leggja töskur og föt á völlinn (þátttakendur geta hjálpað til). Fleirri jarðsprengjur, meira gaman. Látið blindingjann standa við upphaf jarðsprengjubeltisins og félaginn á að standa ca. 2 metrum fyrir aftan blindingjann sinn. Nú þarf að hjálpa blindingjanum að komast yfir, félagi hans gefur honum leiðbeiningar munnlega þaðan sem hann stendur. Félaginn má ekki færa sig úr stað. Ef einhver kemur við jarðsprengju þá er þessu lokið fyrir viðkomandi. Ef blindingjar rekast á þá frjósa þeir í sporunum í 30 sek. Úr þessu verða heilmikil læti og að sjálfsögðu þá er tíminn naumur. Hvetjið þátttakendur að tala svolítið saman, stilla strengi sína áður en yfirferðin hefst.
Annað:

Stutt lýsing
Opið svæði, tvær línur til að afmarka upphaf og endi, a.m.k. 10 þátttakendur, notið töskur og föt til að tákna jarðsprengjur. Eitthvað til að blinda með.
Hópurinn æfist í trausti og bætir samskipti.
Pör vinna saman að því að koma öðru þeirra örugglega yfir jarðsprengjubelti.