ÉgÞúÞúÉg: 5mín
Leikir og dagskrárhugmyndir
Tegund leiks
Kynningarleikir / Brjóta ísinn
Hvað þarf:
Opið svæði til að mynda hring, minnst sex manns en mest 20, 5-10 mín. New Paragraph
Hvað á að gera:
Byrjum í hring. Leiðbeinandi tekur af skarið og sýnir öðrum hvernig á að bera sig að. Snúðu þér að næsta manni (réttsælis í hringnum) og taktu í höndina á honum og segðu nafnið þitt. Ekkert annað, ekki “hvernig hefur þú það” eða því um líkt bara nafnið þitt. Á meðan þið heilsist þá á sá sem er tekið í höndina á að segja sitt eigið nafn. Nokkkuð ljóst hingað til hvað á að gera en hér vandast málið.
Sá sem kynnti sig fyrst (leiðbeinandinn hér) endurtekur nafn þess sem hann heilsar (þið eruð enn þá að heilsast). Ekkert meira, bara endurtaka nafnið. Sá sem þú heilsar á nú að endurtaka nafn þess sem kynnti sig fyrst. Þá er þetta loks komið og hægt að skilja sveitta lófa frá hvor öðrum. Þannig að þetta lítur svona út ef Addi byrjar að kynna sig fyrir Unni: “Addi, Unnur, Unnur, Addi.”
Nú byrjar ballið, sá sem hóf leikinn fer að næsta manni og endurtekur kynninguna og þeir sem eftir koma fylgja eftir. Þannig að allir heilsast einu sinni og koma að lokum á sinn stað í hringnum og standa þar og restinn af hringnum gengur fram hjá þeim svo að lokum hafa allir kynnt sig tvisvar. Þetta er sáraeinfalt bara ekki auðvelt. Ábyrgjumst hlátur og fliss vegna þess að margir munu rugla saman nöfnum, sínum eigin og annarra.
Annað:

Stutt lýsing
Opið svæði til að mynda hring, minnst sex manns en mest 20, 5-10 mín. Hver og einn í hringnum skiptist á að kynna sjálfan(n) sig og endurtaka nafn hvers og eins.