Yfirlýsing

August 12, 2026

Á Landsmóti skáta að Hömrum á Akureyri fór fram vikulangt skátamót með þátttöku fjölda ungmenna. Til þess að stór samkoma af þessu tagi gangi vel fyrir sig er mikilvægt að allir þátttakendur fylgi reglum mótsins og þeim gildum sem skátastarf byggir á.

Einn hópur þurfti því miður að hætta þátttöku á mótinu þar sem einstaklingar innan hópsins fylgdu ekki settum reglum.

Til að tryggja velferð þeirra er málið varðaði, þar á meðal þeirra ungmenna sem þurftu að yfirgefa mótið, var viðbragðsáætlun Æskulýðsvettvangsins fylgt. Í því felst m.a. að kalla til lögreglu og barnavernd og tryggja að viðeigandi fullorðnir aðilar geti tekið við umsjá þeirra ungmenna sem yfirgefa mótið og eru stödd hér á landi án forráðamanna.

Þar sem málið varðar ungmenni verður ekki farið nánar í einstök atvik eða aðstæður þeirra á opinberum vettvangi. Skátarnir leggja ríka áherslu á að gæta trúnaðar og hagsmuna allra þeirra barna og ungmenna sem hlut eiga að máli.

Nýlegar færslur
By Sædís Ósk • September 22, 2026
Nordic Baltic Youth Summit 2026 – Umsóknir eru opnar!
September 14, 2026
dagur íslenskrar náttúru 16. september
By andrea • September 10, 2026
NÝTT DAGATAL TILBÚIÐ
September 4, 2026
Skiladagur 22. september kl 16:00
September 1, 2026
Alþjóðlegur dagur sjálfsvígsforvarna er 10. september

Share this article