Ung i Norden - Útkall 2026

August 6, 2026

Útkall í ung i norden 2026

Ertu skáti á aldrinum 16 og 22 ára og forvitin(n) um hvað alþjóðlegt skátastarf snýst um í raun og veru? Þá er Ung i Norden þitt tækifæri til að komast að því og upplifa alþjóðlegt skátastarf!


Ung i Norden er árlegur samstarfsvettvangur þar sem Norðurlöndin skiptast á að vera gestgjafar og bjóða ungum norrænum skátum til sín (Danmörk, Svíþjóð, Noregur, Finnland, Ísland og Færeyjar). Ísland var gestgjafi í fyrra þar sem þemað var náttúruleg sjálfbærni. En viðburðurinn er haldinn í Danmörku í ár, 22.-25. október 2026 og með þemað: Andleg heilsa meðal ungmenna


Þessi viðburður á við um þig ef þú...

  • Hefur áhuga á að byggja upp skátatengslanetið þitt þvert á Norðurlöndin
  • Hefur áhuga á að læra meira um alþjóðlegt og norrænt skátastarf
  • Vilt fá innblástur og hvatningu til að hafa jákvæð áhrif á fólkið í kringum þig og þig sjálfa(n)
  • Getur tjáð þig á ensku eða skandinavísku tungumáli


Yfir helgina munt þú læra um hvernig við getum gripið til aðgerða innan skátahreyfingarinnar til að efla andlega heilsu ungmenna á Norðurlöndunum. Megináherslan verður á hvernig vellíðan, samfélag og hversdagsleikinn skipta sköpum fyrir andlega heilsu.


Þú munt læra um þessa hluti í gegnum smiðjur, vinnustofur, hvetjandi námskeið, samtöl og pælingar um hvað við getum gert saman til að hafa áhrif í gegnum norrænt samstarf.


Að auki verður að sjálfsögðu stundir til að efla félagslífið ásamt alþjóðlegu kvöldi, þar sem þú færð tækifæri til að byggja upp varanleg vináttubönd, sýna íslenska menningu og deila reynslu þinni úr þínu eigin skátastarfi.


Heil helgi af smiðjum, innblæstri og félagslífi með öllum nýju norrænu skátavinum þínum!



Sæktu um núna!


Almennar upplýsingar:

  • Upphaf: 22. október 2026, kl. 17:00 á Aðal járnbrautarstöðin í Kaupmannahöfn, Danmörku (Københavns Hovedbanegård)
  • Lok: 25. október 2026, kl. 13:30 á Aðal járnbrautarstöðin í Kaupmannahöfn, Danmörku (Københavns Hovedbanegård)
  • Verð: Viðburðargjald er 3.025 DKK á mann, rúmlega 60.000 kr.  án flugs. BÍS niðurgreiðir viðburðinn upp að 35.000 kr.
  • Tungumál: Enska og skandinavíska
  • Aðeins er pláss fyrir fjóra skáta í íslenska fararhópinn
  • Sótt er um hér að neðan og Alþjóðaráð fer yfir umsóknirnar og velur í fararhópinn.
  • Skráningarfrestur er til og með 31. ágúst 2026


We got it.

Thank you for contacting us.
We’ll get back to you as soon as possible.

Umsókn - ung i norden 2026

Vinsamlegast fyllið út þetta rafræna umsóknareyðublað og alþjóðráð fer yfir umsóknirnar og velur í fararhópinn

This is required
This is required Enter a phone number
Enter an email Use an address with (@) and (.)
This is required
This is required
This is required
This is required
This is required
This is required
This is required
This is required

That didn’t work.

The form wasn’t sent. Please try again.

Nýlegar færslur
November 3, 2026
Gróðursettum 1.285 tré í esjuhlíðum
Fjögur ungmenni standa saman og horfa yfir tjaldbúð á viðburði sem þau skipulögðu
By Sædís Ósk • October 22, 2026
Útkall - drekaskátamótstjórn
September 30, 2026
ferðasaga frá Tinna snæ
By Sædís Ósk • September 22, 2026
Nordic Baltic Youth Summit 2026 – Umsóknir eru opnar!
September 14, 2026
dagur íslenskrar náttúru 16. september

Share this article