Útkall: Nordic Baltic Youth Summit 2026

September 22, 2026

Nordic Baltic Youth Summit 2026 – Umsóknir eru opnar!

Langar þig að hitta 200 ungmenni alls staðar að úr Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum, skiptast á skoðunum og hafa áhrif á framtíðina?

Nordic Baltic Youth Summit er einstakur vettvangur þar sem ungmenni koma saman til að ræða helstu áskoranir samtímans og móta tillögur sem afhentar verða stjórnvöldum. Enn er leitað að þátttakendum frá Íslandi!


Aðalþemu ráðstefnunnar:

  • Gervigreind (AI Leap): Áhrif gervigreindar á menntun, vinnu, samfélag og ungmenni.
  • Róttæknivæðing (Radicalisation): Orsakir róttæknivæðingar, forvarnir og viðnám gegn netöfgum.
  • Geðheilsa (Mental Health): Geðheilsa ungmenna, einmanaleiki, forvarnir og aðgengileg stuðningskerfi.
  • Öryggi og Þrautseigja/seigla (Security & Resilience): Stafrænt öryggi, fjölþáttaógnir, áfalla- og viðbragðsbúnaður.
  • Lýðræðisþátttaka ungmenna (Youth Participation in Democracy): Aukin áhrif ungmenna í lýðræðisferlum og stjórnmálum.


Hverjir geta sótt um?

  • Ungmenni á Íslandi (og öðrum Norðurlöndum/Eystrasaltsríkjum) á aldrinum 18–30 ára.
  • Verða að geta tekið þátt í öllu dagskrárferlinu á ensku.
  • Hafa brennandi áhuga á þessum málefnum og vilja láta raddir sínar heyrast!


Hvernig sækir þú um?

  • Umsóknareyðublað: https://tally.so/r/686jWN
  • Viðburðurinn er alveg frír fyrir þátttakendur, gistingin og maturinn er innifalinn fyrir þátttakendur. Eini kostnaðurinn fyrir þátttakendur er eigin ferðakostnaður á staðinn.


Umsóknarfrestur

  • Fresturinn var upphaflega til 20. september kl. 23:59 EEST, en verið er að leita sérstaklega að fleiri þátttakendum frá Íslandi.


Frekari upplýsingar:

  • Vefsíða: nordicbalticyouthsummit.com
  • Instagram: @nbyouthsummit


Verkefnið er skipulagt af Ungmennaráði Eistlands (ENL) og fjármagnað af Norrænu ráðherranefndinni og NORDBUK.


Ath. þessi viðburður er ekki skipulagður af BÍS og erum við ekki að safna í fararhóp í nafni BÍS. Við hvetjum þau ungmenni sem hafa áhuga á þessum þemum sem eru í boði á þessari ráðstefnu að kynna sér þennan viðburð og sækja um ef þau hafa áhuga.



Nýlegar færslur
November 3, 2026
Gróðursettum 1.285 tré í esjuhlíðum
Fjögur ungmenni standa saman og horfa yfir tjaldbúð á viðburði sem þau skipulögðu
By Sædís Ósk • October 22, 2026
Útkall - drekaskátamótstjórn
September 30, 2026
ferðasaga frá Tinna snæ
September 14, 2026
dagur íslenskrar náttúru 16. september
By andrea • September 10, 2026
NÝTT DAGATAL TILBÚIÐ

Share this article