Tré og tjútt

November 3, 2026

This is a subtitle for your new post

Helgina 18-20. september hélt ungmennaráð BÍS viðburðinn Tré og Tjútt, annað árið í röð. Á síðasta ári var mótið vel sótt og voru um 20 þáttakendur en í ár voru um 70 manns með sjáfboðaliðum og mótsstjórn á mótinu, 64 af þeim þáttakendur. Mótið var haldið í samstarfi við Skógræktarfélag Reykjavíkur og mótið var á svæði þeirra við Mógilsá.


Dagskrá mótsins byrjaði þegar krakkarnir mættu á mótsvæðið klukkan 20 á föstudeginum 18. september og settu upp tjaldbúðina. Mótið var sett seinna um kvöldið og var restin af kvöldinu í rólegheitum. Dagskráin á laugardeginum 19. september byrjaði snemma þegar vakið var alla klukkan 8, til að vera komin upp í Esjurætur klukkan 10. Gangan að gróðursetningarsvæðinu var stutt en með fallegu útsýni.



Það var skipt hópnum í tvennt fyrir aðal dagskránna þar sem helmingurinn byrjaði á að gróðursetja tré og hinn helmingurinn var að grisja og snyrta til í skóginum í kring. Gróðursettar voru þrjár mismunandi trjátegundir og allt í allt var gróðursett um 1285 tré við esjurætur og gekk allt vel þar. Einnig gekk vel að grisja og var náð að snyrta stórt svæði í skóginum. Áhersla grisjunninnar var á ný vöxnum greinum sem hefði verið hægt að stinga sig á og að sjá til þess að sólarljós kæmist sem mest inn á milli trjánna.


Þegar komið var niður í tjaldbúð var aðallega frjáls dagskrá í tjaldbúðinni og í skóginum en boðið var upp á alls konar skemmtilegt. Hægt var að baka kanilsnúða, grilla banana með súkkulaði og poppa yfir eldinum og var það vel sótt. Einnig var mikið farið út í skóg að týna hindber á hindberjarunnunum á svæðinu og nýtt sér saununa sem var á svæðinu og var hún mjög vinsæl. Deginum var lokið með kvöldvöku til að halda upp á „tjútt“ hluta mótsins og var kvöldvakan full af þrautum og söngvum.


Mótinu var slitið á sunnudeginum 20. september eftir frágang á svæðinu. Var tekið vel til og passað að skilja svæðið eftir betur en við komum að því. Gekk frágangur vel og voru allir farnir heim um 13 á sunnudeginum.


Við í ungmennaráðinu vorum mjög ánægð með hversu eftirsótt mótið var enda bjuggumst við ekki við 64 þáttakendum. Mótið var auglýst vel af Ungmennaráðinu á samfélagsmiðlum þeirra, sumir gætu sagt að það var auglýst of vel. Skipulagning mótsins gekk vel og erum við í Ungmennaráðinu allt í allt sátt við frammistöður mótsins.


-Sigrún María Einarsdóttir, Ungmennaráði BÍS


Nýlegar færslur
Fjögur ungmenni standa saman og horfa yfir tjaldbúð á viðburði sem þau skipulögðu
By Sædís Ósk • October 22, 2026
Útkall - drekaskátamótstjórn
September 30, 2026
ferðasaga frá Tinna snæ
By Sædís Ósk • September 22, 2026
Nordic Baltic Youth Summit 2026 – Umsóknir eru opnar!
September 14, 2026
dagur íslenskrar náttúru 16. september
By andrea • September 10, 2026
NÝTT DAGATAL TILBÚIÐ

Share this article