Útkall - Drekaskátamótstjórn
October 22, 2026
Útkall - drekaskátamótstjórn

VINNUHÓPUR
MÓTSTJÓRN DREKASKÁTAMÓTS
-Ævintýraleg upplifun, fjölbreytt dagskrá og skemmtilegar áskoranir-
Auglýst er eftir sjálfboðaliðum í mótstjórn Drekaskátamóts. Fullkomið tækifæri fyrir þau sem eru að stíga sín fyrstu skref í skipulagningu skátamóta og vilja taka þátt í að skipuleggja ævintýralegt skátamót. Verkefnið hentar vel rekkaskátum sem eru að vinna að forsetamerkinu!
Drekaskátamót er ótrúlega skemmtilegt skátamót þar sem drekaskátar hittast og gista saman í eina nótt á Úlfljótsvatni
Hvaða kröfur þarf ég að uppfylla til að vera með?
- 18 ára eða eldri
- Geta unnið í hóp
- Hafa metnað, frumkvæði og hugmyndaauðgi
Tímalína
Tímalengd verkefnisins er frá desember 2026 – loka júní 2029. Verkefninu er skipt þannig upp að á fyrsta drekaskátamótinu mun núverandi drekaskátamótsstjórn skipuleggja mótið með ykkur og kenna ykkur verklag og skipulag mótsins. Á öðru árinu sjái þið um mótið sjálf og á þriðja árinu fáið þið inn hóp af skátum sem mun taka við af ykkur í mótsstjórn og munið þið leiða þau í gegnum mótið.
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt þá fyllið út rafræna umsóknareyðublaðið hér að neðan.
Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember 2026
Við hlökkum til að heyra frá þér!
We got it.
Thank you for contacting us.
We’ll get back to you as soon as possible.
Nýlegar færslur







