CREAN 2027 - umsókn

August 17, 2026

We got it.

Thank you for contacting us.
We’ll get back to you as soon as possible.

CREAN 2027 - UMSÓKN

uMSÓKN Á CREAN 2027

Umsóknarfresturinn er til og með 6. september

This is required
This is required Enter a phone number
This is required
Enter an email Use an address with (@) and (.)
Enter an email Use an address with (@) and (.)
This is required
This is required
This is required
This is required
This is required
This is required
This is required
This is required

That didn’t work.

The form wasn’t sent. Please try again.

Um vetraráskorun Crean

Verkefnið er samstarfsverkefni BÍS og Scouting Ireland. Crean vetraráskorun hefur verið haldin síðustu ár og stendur yfir sjö mánaða tímabil sem lýkur í viku löngum leiðangri um Hellisheiði. 


Markmið verkefnisins

Að þátttakendur öðlist færni í útivist í mismunandi aðstæðum ásamt sjálfbærni í vetrarferðum á fjöllum. Meðal annars skyndihjálp á fjöllum, gönguferðir að vetri, rötun og kortalestur, að nota GPS, næringarfræði ferðamannsins, skálahegðun og ferðareglur í hópferðum, veðurfræði á fjöllum, og ýmislegt annað. Verkefnið skiptist í þrennt; fjórar undirbúnings ferðir, persónuleg verkefni unnin í frítíma og ferðin í febrúar.


Fyrir hverja

Crean er fyrir dróttskáta en þar sem takmarkað pláss er fyrir þátttakendur og mun elsta árið í dróttskátum fá forgang en umsóknir og umsagnir ráða úrslitum um hver verða tekin inn. Því er mikilvægt að vanda til verka við umsóknina. Ætlast er til þess að þátttakendur taki þátt í undirbúningsútilegunum og vinni að sínum settum markmiðum í leiðarbók fram að febrúarferðinni. Verkefnin eru á sviði vetrarferðamennsku, sjálfskoðunar, markmiðasetninga og samfélagsvinnu. Vinna þarf öll verkefnin á tilsettum tíma til að geta haldið áfram í áskoruninni. Skipuleggjendur áskila sér rétt til að enda þátttöku ef að þátttakendur standa ekki skil á verkefnum eða sýna að þau hafa ekki getu eða vilja til að ljúka verkefninu.


Ef þú ert 18+ og langar að aðstoða við verkefnið sem sjálfboðaliði. T.d. að taka þátt í einni undirbúningsútilegu eða ert með sérkunnáttu sem nýtist í svona verkefni þá hvetjum við þig til að hafa samband við leiðbeinendur Crean,
crean@skatarnir.is


Hvenær

Crean vetraráskorunin sjálf á sér ávallt stað í febrúar en undirbúningshelgarnar dreifast um mánuðina á undan. Nákvæm dagsetning fer yfirleitt eftir hvenær hagstætt sé fyrir Írana að koma til landsins ásamt skólafríium.


Almennar upplýsingar um CREAN 2027

Árið 2027 gilda eftirfarandi dagsetningar og skiptast verkefnin í eina kvöldstund, fjórar undirbúningsútilegur og einn leiðangur um Hellisheiði.


Útilega 1

• Fræðslukvöld: 17. september, fimmtudagur í Reykjavík

• 1. Útilega: 25. september – 27. september

Útilega 2

• Undirbúningskvöld: 6. október

• 2. Útilega: 9. – 11. október

Útilega 3

• Undirbúningskvöld: 10. nóvember

• 3. Útilega: 13. – 15. nóvember

Kvöldfundur

• stakur kvöldfundur – 17. desember

Útilega 4

• Nánari dagsetning á síðustu undirbúningsferðina kemur þegar nær dregur. En gera má ráð fyrir þriðjudagskvöldi í janúar og svo útilegu fylgjandi helgi. 

CREAN áskorunin

• Undirbúningskvöld: virkt kvöld fyrir aðal vikuna. 

• CREAN áskorunin: vika um miðjan febrúar (líklegast í kringum 12.-19. febrúar, nánari upplýsingar koma um leið og búið er að staðfesta dagsetninguna. 


Kostnaður

Crean 2027 kostar 110.000 kr.

Innifalið í því er dagskrá, gisting og flutningur af heiðinni í febrúar. 

Þátttakendur þurfa sjálf að koma með annan mat í undirbúningsferðunum ásamt því að koma sér sjálf á staðinn og heim aftur hverju sinni. Þátttakendur þurfa að hafa allan helsta persónulegan búnað til vetrarferða s.s. góðan skjólfatnað, svefnpoka sem þolir vetrarveður, bakpoka, gönguskó og tjald (rætt verður fyrir útilegurnar hvort hægt sé að sameinast í tjöld og fá lánað). Ekki er nauðsynlegt að eiga klifurbúnað, ísaxir, brodda eða skíði. Ef þátttakandi á ekki réttan búnað, er gott að athuga hvort hægt sé að fá lánaðan búnað hjá ættingjum, vinum eða jafnvel skátafélagi.

 

Skráning

Hægt er að sækja um sem þátttakandi á CREAN með því að fylla út rafrænt skráningareyðublað sem birtist á heimasíðu Skátanna mánudaginn 17. ágúst kl. 12:00. 

Íslenski þátttakendahópurinn hefur einungis 16 pláss og mun leiðbeinendahópurinn fara yfir umsóknirnar sem berast og velja úr þeim þá skáta sem komast í þátttakendahópinn. Því skiptir miklu máli að vanda vel til verka við umsóknina.

Þegar búið er að velja þátttakendur mun vera haft samband við alla umsækjendur og þeim sem verða fyrir valinu bætt við Abler hóp CREAN þar sem þau hefja greiðsluferlið og geta verið í beinum samskiptum við leiðbeinendurnar. 


Umsóknarfresturinn er til og með föstudagsins 6. september. 2026. 


Hér eru spurningar sem verða á umsókninni:

  • Af hverju viltu taka þátt 
  • Hvaða reynslu hefur þú af útivist
  • Hefur þú tekið þátt í verkefnum innan skátahreyfingarinnar áður, t.d. foringjastörf, ferðir/útilegur, skátaviðburðir
  • Hvernig telur þú að þátttaka þín muni nýtast þér í framtíðinni og einnig við áframhaldandi skátastarf
  • Heilsufar, þátttakan krefst mikillar hreyfingar og útiveru að vetri til og mikilvægt að þátttakendur séuhraustir og við góða heilsu
  • Er eitthvað fleira sem þig langar að komi fram
  • Meðmæli frá skátaforingja / öðrum tengilið skátafélags / annar leiðbeinandi


Nýlegar færslur
August 12, 2026
Á Landsmóti skáta að Hömrum á Akureyri fór fram vikulangt skátamót með þátttöku fjölda ungmenna. Til þess að stór samkoma af þessu tagi gangi vel fyrir sig er mikilvægt að allir þátttakendur fylgi reglum mótsins og þeim gildum sem skátastarf byggir á. Einn hópur þurfti því miður að hætta þátttöku á mótinu þar sem einstaklingar innan hópsins fylgdu ekki settum reglum. Til að tryggja velferð þeirra er málið varðaði, þar á meðal þeirra ungmenna sem þurftu að yfirgefa mótið, var viðbragðsáætlun Æskulýðsvettvangsins fylgt. Í því felst m.a. að kalla til lögreglu og barnavernd og tryggja að viðeigandi fullorðnir aðilar geti tekið við umsjá þeirra ungmenna sem yfirgefa mótið og eru stödd hér á landi án forráðamanna. Þar sem málið varðar ungmenni verður ekki farið nánar í einstök atvik eða aðstæður þeirra á opinberum vettvangi. Skátarnir leggja ríka áherslu á að gæta trúnaðar og hagsmuna allra þeirra barna og ungmenna sem hlut eiga að máli.
By Sædís Ósk August 6, 2026
Útkall í ung i norden 2026
July 23, 2026
Hér má lesa öll tölublöð sólstafa
July 22, 2026
Landsmót var sett á hömrum 20. júlí
By Halldóra Skátarnir June 24, 2026
Námskeið í Georgíu: „Not all classrooms have four walls“

Share this article