Ds. Fimmvörðuháls

September 30, 2026

ferðasaga frá Tinna snæ

Ds. Fimmvörðuháls 2026

Þann 12. júní 2026 lagði fjölbreyttur hópur skemmtilegra skáta og foringja af stað í ferðalag sem tók næstum tvo daga. Það hófst í Landnema heimilinu eld snemma að föstudagsmorgni, þar sem rúta beið okkar, þar mættu allir með nesti, bros og göngupoka.

 

Við lögðum af stað. Tveimur tímum síðar vorum við komin á Hvolsvöll þar sem við fengum okkur nesti og notuðum  salernið. Ferðalagið hélt áfram. Stuttu síðar vorum við komin að Skógafossi, þar sem við settum á okkur bakpokana, tókum myndir og lögðum af stað í þessa göngu.


Eftir langt labb, mörg stopp og rosalega marga fossa, mættum við í Baldvinsskála sem er 900 metra yfir sjávarmáli, þar var ákveðið hverjir svæfu þar og hverjir myndu halda áfram upp í Fimmvörðuskála sem er 1050 metrar yfir sjávarmáli. Þegar var komið í Fimmvörðuskála mætti okkur þar gullfallegt sólsetur.


Vaknað var í kringum 10 leytið á laugardagsmorgun þar sem var borðaður morgunmatur og haldið var af stað, í kringum eittleytið fór hópur skáta upp á fjöllin Magna og Móða sem eru fjöll sem mynduðust í eldgosinu 2010. Eftir góða göngu og fallegt útsýni komum við í Bása þar sem var verið að elda dýrindis kjúklingaborgara og búið að setja upp tjaldbúð fyrir okkur. Það kvöld var geggjuð kvöldvaka fyrir alla í Þórsmörk sem Siggi Úlla stýrði. Eftir það var komin háttatími og allir fóru í háttin.  


Næsta morgun vöknuðu allir hressir og kátir. Í kringum hádegi var allt dót komið upp í rútu og lagt var af stað að Stakkholtsgjá þar sem fólk baðaði sig í fossinum og allir urðu eitthvað blautir en allir brosandi og hlæjandi eftir skemmtilegan göngutúr. Svo var lagt af stað í síðast ævintýri þessar ferðar sem var að vaða í gegnum gljúfur í litla fallega laut 


Þegar búið var að vaða til baka var slitið fyrir framan rútuna þar sem nýr skáti var vígður, við  sungum Bræðralagsöngin og allir fengu hæðar eða stiku merki. Eftir það var farið í rútuna og lagt af stað aftur til Reykjavíkur.


Eftir langa bílferð, stutt stopp á Hvolsvelli og rosalega mikla umferð vorum við komin aftur heim, 

Við kvöddumst og tókum töskurnar og héldum af stað aftur í lífið.



Takk fyrir mig 

Tinni Snær | Skjöldungum         


Nýlegar færslur
By Sædís Ósk • September 22, 2026
Nordic Baltic Youth Summit 2026 – Umsóknir eru opnar!
September 14, 2026
dagur íslenskrar náttúru 16. september
By andrea • September 10, 2026
NÝTT DAGATAL TILBÚIÐ
September 4, 2026
Skiladagur 22. september kl 16:00
September 1, 2026
Alþjóðlegur dagur sjálfsvígsforvarna er 10. september

Share this article