12 leiðir til að fagna íslenskri náttúru

September 14, 2026

dagur íslenskrar náttúru 16. september

Dagur íslenskrar náttúru er tilvalið tilefni til að fara út, líta í kringum sig og njóta alls þess sem íslensk náttúra hefur upp á að bjóða. Þetta þarf alls ekki að vera stór leiðangur, stundum leynist ævintýrið í næsta nágrenni.

Hér eru 12 einfaldar og skemmtilegar hugmyndir til að fagna íslenskri náttúru


  1. Farið í náttúrubingó
  2. Hér má hlaða niður skemmtilegu náttúrubingó.
  3. Takið 10 mínútna leiðangur
  4. Farðu út í 10 mínútur og reyndu að finna 10 áhugaverða hluti í náttúrunni. Það kemur á óvart hvað er hægt að uppgötva þegar maður fer að horfa í kringum sig.
  5. Hlustið á náttúruna
  6. Finndu góðan stað, lokaðu augunum og hlustaðu. Hvað heyrist? vindurinn, fuglar, vatn eða eitthvað annað? Reyndu að telja hversu mörg mismunandi hljóð þú heyrir.
  7. Farið í litaleit
  8. Hversu marga liti getur þú fundið í náttúrunni? Grænn og brúnn eru auðveldir, en hvað með rauðan, appelsínugulan, fjólubláan eða bleikann?
  9. Rannsakið einn hlut betur
  10. Veldu eina plöntu, fugl, stein, skel eða annað sem vekur forvitni og skoðaðu það nánar.
  11. Líttu niður
  12. Hvað gerist ef við horfum niður? Veldu afmarkað svæði og horfðu niður, skoðaðu vandlega og athugaðu hvað leynist þar. Það gætu verið pöddur, plöntur, steinar, mosi og margt fleira sem þú hefðir ekki séð nema horfa niður.
  13. Farið í ljósmyndaleiðangur
  14. Taktu fimm myndir af smáatriðum í náttúrunni, t.d. eitthvað sem þú hefðir vanalega gengið framhjá. Mynstur í steini, vatnsdropar, skuggar, mosi og lauf geta orðið að óvæntum listaverkum.
  15. Gerið göngutúrinn aðeins grænni
  16. Taktu poka með í göngutúrinn og tíndu rusl sem verður á vegi þínum. 
  17. Uppgötvið nýja staði
  18. Heimsækjið stað í nágrenninu sem þið hafið aldrei skoðað almennilega. Það þarf ekki að vera frægur foss eða fjall. Fjara, hóll, skógarreitur, tjörn eða göngustígur í næsta nágrenni getur orðið að ævintýri.
  19. Notið skilningarvitin
  20. Finnið eitthvað fallegt að sjá, eitthvað áhugavert að snerta, eitthvað sem gefur frá sér lykt og eitthvað skemmtilegt að hlusta á
  21. Veljið ykkar uppáhaldsstað
  22. Hvaða staður í íslenskri náttúru skiptir ykkur mestu máli? Fjall, fjara, dalur, foss eða kannski bara litli hóllinn í hverfinu? Segið hvert öðru frá staðnum og hvers vegna hann er sérstakur.
  23. Árstíðaverkefnið
  24. Veljið einn stað, finnið ákveðið sjónarhorn og takið mynd. Komið svo aftur á sama stað að vetri, vori og sumri og takið sömu mynd. Að ári liðnu eigið þið fjórar myndir sem sýna hvernig náttúran breytist með árstíðunum.


Náttúran er ekki bara stórbrotin fjöll, fossar og óbyggðir, hún er líka mosinn við stíginn, fuglinn í garðinum, veðrið sem breytist á fimm mínútum og litlu hlutirnir sem við tökum ekki alltaf eftir.


Klæðið ykkur eftir veðri, farið út og sjáið hvað þið finnið. Munið að ganga vel um náttúruna og virða lífríkið.


Nýlegar færslur
Fjögur ungmenni standa saman og horfa yfir tjaldbúð á viðburði sem þau skipulögðu
By Sædís Ósk • October 22, 2026
Útkall - drekaskátamótstjórn
October 19, 2026
Hefur þú gaman að því að takast á við nýjar áskoranir og taka þátt í skemmtilegu jólastarfi? Við leitum að hressum, hjálpsömum og úrræðagóðum jólaálfum til starfa í jólaskógi Sígræna Við leitum að skátum sem: hafa ríka þjónustulund og jákvætt viðmót sýna frumkvæði eru tilbúin að aðstoða við val á jólatré þjónusta viðskiptavini eru stundvís, áreiðanleg og tilbúin að bretta upp ermar hafa gaman að því að vinna með öðrum Helstu verkefni jólaálfa eru: aðstoða viðskiptavini afgreiðsla og almenn þjónusta halda jólaskóginum snyrtilegum og jólalegum stuðla að notalegri og eftirminnilegri upplifun Vilt þú verða hluti af jólaálfateyminu okkar? Sæktu um hér fyrir neðan. Nánari upplýsingar veitir Ragnar Þór Þrastarson , framkvæmdastjóri Skátabúðarinnar.
September 30, 2026
ferðasaga frá Tinna snæ
By Sædís Ósk • September 22, 2026
Nordic Baltic Youth Summit 2026 – Umsóknir eru opnar!
By andrea • September 10, 2026
NÝTT DAGATAL TILBÚIÐ

Share this article