Kynning: Björk
March 9, 2026
Björk Norðdahl
Framboð: Meðstjórnandi í stjórn BÍS

Ég býð mig fram sem meðstjórnandi í stjórn BÍS tímabilið 2026-2028
Ég hef verið skáti frá unga aldri og starfaði í skátafélaginu Kópum fram til tvítugs. Ég kom svo aftur inn í skátastarfið sem foreldri í baklandi Kópa, en sneri mér svo að starfi BÍS og sat í fræðsluráði og síðan í stjórn BÍS sem formaður fræðsluráðs og svo meðstjórnandi.
Ég hef setið í stjórn skátaskólans síðustu ár, verið skólastjóri Gilwell skólans ásamt því að starfa með þrennuþjálfum í Félagaþrennunni.
Ég hef áhuga á að leggja mitt af mörkum í stjórn BíS næstu tvö árin. Ég vil leggja sérstaka áherslu á fjölgun sjálfboðaliða og markvissari stuðning við þau, þannig að þau fái verkefni við hæfi og séu sátt í starfi.





