Kynning: Guðni

March 6, 2026

Guðni Hannesson

Framboð: Starfsráð

Ég heiti Guðni Hannesson, er Hraunbúi og býð mig fram í Starfsráð BÍS.

Ég er tvítugur hafnfirðingur og hef verið í skátunum frá því að ég man eftir mér.

Ég var aðstoðar drekaskátaforingi um tíma, síðan aðstoðar fálkaskátaforingi og er núna dróttskátaforingi í Hraunbúum. Ég var starfandi í unglingadeild BSH og byrjaði í nýliðum hjá þeim en lauk þeirri þjálfun hjá Súlum og varð fullgildur björgunarsveitarmaður þar þegar ég var fyrir norðan í námi í VMA. Í dag starfa ég með HSSK.

Ég hef farið á öll landsmót síðan 2005, fór á Jamboree í Kóreu 2023, á Roverway 2024 og stefni á Jamboree í Póllandi sem IST 2027.

Ég fékk forsetamerkið í mars 2025.

Ég er í námi í Tækiskólanum og vinn með námi hjá vélsmiðjunni Sjóstál.

Mig langar að bjóða mig fram til setu í starfsráði vegna þess að ég hef mikinn áhuga á skátastarfinu og langar að leggja mitt af mörkum á vettvangi bandalagsins.

Nýlegar færslur
March 6, 2026
Birkir Kári Gíslason
March 6, 2026
Daníel Þröstur Pálsson
March 6, 2026
Edda María Einarsdóttir
March 6, 2026
María Rakel Clausen
March 6, 2026
Lára Margrét Hermannsdóttir

Share this article