Kynning: Elfa Björg

March 4, 2026

Elfa Björg Aradóttir

Framboð: félagslegur skoðunarmaður reikninga

Elfa Björg Aradóttir er Hraunbúi og gildismeistari skátasgildisins Skýjaborga. Hún hefur um árabil sinnt fjölbreyttum störfum innan skátahreyfingarinnar á Íslandi og lagt sitt af mörkum bæði í sjálfboðastarfi og stjórnarsetu. Hún hefur meðal annars setið í Úlfljótsvatnsráði og í stjórn Ferðbúans. Elfa er löggiltur endurskoðandi og starfar sem framkvæmdastjóri fjármála hjá Borealis Data Center.

Nýlegar færslur
April 11, 2026
Skátaþing sett á Akureyri
March 24, 2026
Dróttskátadagurinn var hreinasta veisla!
March 18, 2026
Skátaþing 2026 - frestun
March 18, 2026
Hulda Lárusdóttir hóf störf hjá Skátamótum þann 11. mars síðastliðinn og tekur við verkefnum fráfarandi viðburðarstjóra, Heiðdísi Snorradóttur. Hulda er tölvunarfræðingur og hefur áratuga reynslu af foringjastörfum og stjórnarsetu, ásamt framkvæmdum skátamóta. Hulda mun vera mótsstjórn Landsmóts skáta á Hömrum innan handar ásamt því að sinna þeim fjölmörgu viðburðum sem Skátamót standa fyrir. Ragnar Auðun Árnason hóf störf hjá Bandalagi íslenskra skáta og Skátamótum þann 11. mars síðastliðinn. Starf hans deilist á Skátamót og skrifstofu BÍS. Ragnar tók virkan þátt í skátastarfi á yngri árum, sem foringi og svo starfsmaður á námskeiðum ásamt því að hafa haldgóða rekstrar- og viðburðastjórnunarreynslu. Ragnar er stjórnmálafræðingur og mun leiða matarúthlutun Landsmóts skáta á Hömrum og síðar sinna verkefnum hjá Skátamiðstöðinni. Við bjóðum Huldu og Ragnar innilega velkomin til starfa hjá okkur í Skátamiðstöðinni og hlökkum til samstarfsins á sama tíma og við þökkum Heiðdísi fyrir samstarfið.
March 12, 2026
Nýr alþjóðarfulltrúi bís hjá wosm

Share this article