Kynning: Birkir Kári
March 6, 2026
Birkir Kári Gíslason
Framboð: Útilífsráð

Ég er í skátafélaginu Klakki og er búinn að vera þar í 9 ár og hef lært mikið varðandi skátastarf og útivist. Ég hef upplifað margt sem hefur hjálpað mér í skátastarfi mínu, til dæmis vegferðin að forsetamerkinu sem ég fékk í nóvember 2025. Ég var svo heppinn að fá tækifærið að fara á Jambo í S-Kóreu og mökuleikan á að fara sem IST til Póllands 2027.
Nýlegar færslur

March 18, 2026
Hulda Lárusdóttir hóf störf hjá Skátamótum þann 11. mars síðastliðinn og tekur við verkefnum fráfarandi viðburðarstjóra, Heiðdísi Snorradóttur. Hulda er tölvunarfræðingur og hefur áratuga reynslu af foringjastörfum og stjórnarsetu, ásamt framkvæmdum skátamóta. Hulda mun vera mótsstjórn Landsmóts skáta á Hömrum innan handar ásamt því að sinna þeim fjölmörgu viðburðum sem Skátamót standa fyrir. Ragnar Auðun Árnason hóf störf hjá Bandalagi íslenskra skáta og Skátamótum þann 11. mars síðastliðinn. Starf hans deilist á Skátamót og skrifstofu BÍS. Ragnar tók virkan þátt í skátastarfi á yngri árum, sem foringi og svo starfsmaður á námskeiðum ásamt því að hafa haldgóða rekstrar- og viðburðastjórnunarreynslu. Ragnar er stjórnmálafræðingur og mun leiða matarúthlutun Landsmóts skáta á Hömrum og síðar sinna verkefnum hjá Skátamiðstöðinni. Við bjóðum Huldu og Ragnar innilega velkomin til starfa hjá okkur í Skátamiðstöðinni og hlökkum til samstarfsins á sama tíma og við þökkum Heiðdísi fyrir samstarfið.





