Kynning: Reynir Tómas
March 9, 2026
Reynir Tómas Reynisson
Framboð: Meðstjórnandi í stjórn BÍS

Ég heiti Reynir og ég ætla að kenna ykkur að rista smá brauð. Nei, nei, létt spaug, ég býð mig fram sem meðstjórnandi í stjórn BÍS til næstu tveggja ára.
Ég hef verið skáti í 15 ár og er uppalinn Garðbúi. Ég var um stutta stund foringi þar og sat einnig í stjórn Garðbúa sem sjálfboðaliðaforingi í eitt ár.
Ég hef grúskað í ýmsu starfi fyrir bandalagið, ég sat í mótstjórn Drekaskátamóts í rúm 4 ár og var mótsstjóri á tveimur mótum. Ég var einnig hluti af skipulagsteyminu sem hélt Ung i norden í fyrra og hef síðastliðin ár verið hluti af uppstillingarnefnd BÍS. Ég var hluti af tækniteymi landsmóts skáta 2024 og hef varið ótal stundum á Úlfljótsvatni að snáðast í hinum ýmsu verkefnum. Að auki hef ég verið hluti af bólstruðum vöðvatröllum Skátalands til margra ára.
Bæng,
Reynir Tómas Reynisson





