Kynning: Hafdís Bára
March 5, 2026
Hafdís Bára Kristmundsdóttir
Framboð: Uppstillinganefnd

Hafdís Bára Kristmundsdóttir heiti ég og hef verið skáti frá unga aldri í skátafélaginu Vífli í Garðabæ. Eftir hlé úr starfi kom ég aftur inn sem foreldri og settist í stjórn Vífils. Varð síðar félagsforingi en starfa nú í baklandi félagsins og er til staðar þegar á þarf að halda. Skátastarf hefur fært mér margar ánægjustundir og fjölbreytta reynslu. Ekki síst hef ég kynnst afar góðu fólki sem er mjög gefandi að vinna með og þekkja. Það að vinna með börnum og ungmennum er líka sérstaklega skemmtilegt og heldur mér ungri í anda. Ég býð mig fram til endurkjörs í Uppstillingarnefnd BÍS.
Nýlegar færslur

March 18, 2026
Hulda Lárusdóttir hóf störf hjá Skátamótum þann 11. mars síðastliðinn og tekur við verkefnum fráfarandi viðburðarstjóra, Heiðdísi Snorradóttur. Hulda er tölvunarfræðingur og hefur áratuga reynslu af foringjastörfum og stjórnarsetu, ásamt framkvæmdum skátamóta. Hulda mun vera mótsstjórn Landsmóts skáta á Hömrum innan handar ásamt því að sinna þeim fjölmörgu viðburðum sem Skátamót standa fyrir. Ragnar Auðun Árnason hóf störf hjá Bandalagi íslenskra skáta og Skátamótum þann 11. mars síðastliðinn. Starf hans deilist á Skátamót og skrifstofu BÍS. Ragnar tók virkan þátt í skátastarfi á yngri árum, sem foringi og svo starfsmaður á námskeiðum ásamt því að hafa haldgóða rekstrar- og viðburðastjórnunarreynslu. Ragnar er stjórnmálafræðingur og mun leiða matarúthlutun Landsmóts skáta á Hömrum og síðar sinna verkefnum hjá Skátamiðstöðinni. Við bjóðum Huldu og Ragnar innilega velkomin til starfa hjá okkur í Skátamiðstöðinni og hlökkum til samstarfsins á sama tíma og við þökkum Heiðdísi fyrir samstarfið.





